
Lilja Dögg Alfreðsdóttir:
„Á vakt ríkisstjórnarinnar hafa opinber gjöld hækkað yfir 25% á ársgrundvelli, sem óhjákvæmilega eykur verðbólgu.“
„Aðgerðarleysi er ekki í boði! Við þurfum að vinna okkur saman út úr vandanum.“
„Ríkisstjórnin hefur því miður sofnað á verðbólguvaktinni og afleiðingarnar blasa við. Seðlabankinn staðfesti í morgun, samhliða hækkun stýrivaxta, að hagkerfið sé að kólna hratt. Þrátt fyrir það hefur verðbólga tekið við sér á ný og mælist nú 5,2% annan mánuðinn í röð. Telur Seðlabankinn að þessa þróun megi að nokkru leyti rekja til hækkunar opinberra gjalda og afleiddra áhrifa af þeim.
Á vakt ríkisstjórnarinnar hafa opinber gjöld hækkað yfir 25% á ársgrundvelli, sem óhjákvæmilega eykur verðbólgu.
Ríkisstjórninni ber skylda til að leita allra leiða til að draga úr verðbólgu, enda bitnar núverandi ástand verulega illa á fjölskyldum og fyrirtækjum.
Framsókn er sem fyrr reiðubúin til samtals við stjórnvöld um aðgerðir í breiðri sátt. Í ljósi stöðu efnahagsmála leggur Framsókn til eftirfarandi meginefnahagsaðgerðir, þ.m.t. að svokölluð verðbólgusía verði tekin upp á allar aðgerðir sem ríkisstjórn fer í næstu 12-18 mánuði til að ná tökum á stöðunni. Hér eru nokkrar tillögur að aðgerðum:
- (1) Heimilin: Styrkja stöðu heimilanna með því að draga úr gjaldskrárhækkunum og útgjaldaaukningu hins opinbera. Hefja vinnu við aðgerðir í þágu skuldsettra heimila, þar sem verðtryggðar skuldir heimilanna hafa vaxið um tugi milljarða. Allar aðgerðir þurfa að taka mið af verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.
- (2) Ríkisfjármálin: Minnka útgjaldavöxt og draga markvisst úr nýjum ríkisútgjöldum sem ekki snerta grunninnviði. Kynna strax aðgerðir um að ríkisstjórnin ætli að skila umtalsverðum afgangi á fjárlögum ársins 2026.
- (3) Vinnumarkaðurinn: Stóraukið samstarf við vinnumarkaðinn sem miða að styrkja forsendur kjarasamninga, svo að uppsagnarákvæðið verði ekki virkjað í haust. Einnig þarf að kanna í kjölinn aðgerðir, sem miða því að draga úr afleiðingum vegna hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu.
Aðgerðarleysi er ekki í boði! Við þurfum að vinna okkur saman út úr vandanum.“
(Myndin fylgdi Facebookfærslu Lilju Daggar.)