- Advertisement -

Reykjavík best – bláu bæirnir verstir

Fréttaskýring:

Þegar borinn eru saman fjöldi félagslegar íbúða á Höfuðborgarsvæðinu kemur sterklega í ljós að Reykjavík ber höfuð og herðar yfir hin sveitarfélögin. Þegar fjöldi félagslegra íbúða er borin saman við fjölda íbúa kemur þetta í ljós.

Hér sést þetta svart á hvítu. Reykjavíkurborg á 2.250 íbúðir. Miðað við íbúafjöldann sést að 16,09 íbúðir eru að baki hverjum þúsund íbúum.

Hafnarfjörður kemur næst, en er samt langt frá stöðunni í Reykjavík. Hafnarfjarðarbær á 280 íbúðir. Hafnarfjörður á 280 íbúðir, eða 8,64 á hverja þúsund íbúa.

Kópavogur kemur þar á eftir, með 334 íbúðir, sem gerir 8,29 íbúar eru að baki hverri og einni íbúð. Mosfellsbær á 53 félagslegar íbúðir. Sem er ekki mikið í neinum samanburði, nema í samanburði við bláu bæina.

Kópavogur kemur þar á eftir, með 334 íbúðir, sem gerir 8,29 íbúðir á hverja þúsund íbúa.

Bláubæirnir, Garðabær og Seltjarnarnes eru svo langt undan öðrum bæjarfélögum. 33 slíkar í búðir eru í Garðabæ og átta á Seltjarnarnesi.

Ljóst er að Reykjavík hefur staðið sig mjög mun betur en öll hin sveitarfélögin. Eins og kom fram hér að framan eru 2.250 félagslegar íbúðir í Reykjavík, en samtals 708 í hinum fimm sveitarfélögunum.  

-sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: