„…að það eigi í raun að leggja í ágúst spurningu fyrir almenning sem almenningur hefur einhvern möguleika á að skilja hvað í felst.“
Bergþór Ólason Miðflokki.
Alþingi: Bergþór Ólason Miðflokki talaði um atkvæðaafgreisðluna um hvort halda eigi áfram með samningaviðræðurnar við Evrópusambandið:
„Fyrst er það að segja varðandi aðdragandann og þessa greinargerðarmynd sem liggur hér fyrir að Þór og Danni í Nýju lífi hefðu kallað þetta þunnildi sem kaupmaðurinn hefði ekki einu sinni boðið kettinum sínum upp á. Í þessari greinargerð er eiginlega ekki neitt sem skiptir máli, sem væri til þess að skapa einhverja tiltrú okkar hér í þinginu sem höfum efasemdir um þessa vegferð á því að það eigi í raun að leggja í ágúst spurningu fyrir almenning sem almenningur hefur einhvern möguleika á að skilja hvað í felst,“ sagði Bergþór Ólason Miðflokki á Alþingi.
„Mér finnst hafa verið mjög illa að þessum undirbúningi öllum staðið. Og aðdragandinn, þetta kemur eins og skrattinn úr sauðarleggnum þarna á föstudegi á miklum hallelúja PR-blaðamannafundi og svo hefjast umræður um málið á mánudegi. Engin samráðsgátt, ekkert samráð við utanríkismálanefnd og áfram mætti telja. Þetta er allt á sömu bókina lært.“