Kosningar: Atli Þór Fanndal skrifaði:
RÚV á þakkir skilið fyrir alveg fínar umræður í kvöld. Það var margt sem vakti athygli mína þarna. Mikið hefði verið fínt ef RÚV væri með fólk á vakt að kanna hvað er sagt og hvað gerðist. Fullt af skemmtilegum fréttum sem hefðu getað komið út úr því. Til dæmis hefði mátt rifja upp alveg hreint fínustu frétt sem fréttastofa sjálf skrifaði um aðkomu Einars Þorsteinssonar að þessu græna gímalds bixi öllu. Það er merkilegt að Einar kannist ekkert við neitt.
Því strax árið 2024 var Einar í miklum samskiptum, símtölum og fundum lofandi Högum og framkvæmdaaðila allskonar. RÚV birti fréttir þar sem vitnað er í póstana og til allskonar símtala og funda sem ekkert er til frá. Það er svo gaman að segja frá því að Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, var aðstoðarmaður Einars. Enn skemmtilegra er að segja frá því að Óli Örn Eiríksson, sem varð aðstoðarmaður matvælaráðherra, en þarna yfir atvinnu- og borgarþróunarteymi Reykjavíkurborgar og er nú sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu. Var í gríðarlega miklum samskiptum við borgarstjóra, Haga og byggingaraðila. Magnað að enginn kannist við eitt né neitt núna. Og að Viðreisn ætli að verðlauna Framsókn með því að hafa þau efst á óskalistanum. Odviti Viðreinsar var aðstoðarmaður borgarstjóra á þessum tíma. Hún veit vel að Einar var bara í þjónkun við Haga þarna.
Það finnst ekki arða af samskiptum við Einar þar sem hann hefur nokkurn áhuga á hagsmunum borgarbúa… það eina sem þessir menn hugsa um eru bílastæði og rentusókn fyrir ríkt fólk. Þrælskemmtilegt að lærdómur Viðreisnar sé að vilja vinna með Framsókn aftur alveg eins og í gamla daga þegar flokkarnir bixuðu saman fyrir Haga og borgarbúar fengu Grænt gímald.




