- Advertisement -

Aðgerð aðeins fyrir þau betur settu

Hann segir að það væri óeðlilegt að viðhalda kerfinu umfram þann tímapunkt.

Úr viðtali í Heimildinni við Sigurð Inga Jóhannsson.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar og innviðaráðherra, er í viðtali hjá Heimildinni. (Þó ég sé áskrifandi hefur mér aldrei tekist að opna fréttir á heimildin.is.) Í viðtalinu segir Sigurður Ingi nokkuð merkilegt.

„Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir þá hópa, sem eru að nýta sér séreignarsparnað skattfrjáls til að greiða niður íbúðalán sín, séu ekki þeir hópar sem þurfi mest á húsnæðisstuðningi að halda á Íslandi í dag. Það hafi enda verið tillaga starfshóps um húsnæðisstuðning sem hann skipaði, og skilaði af sér skýrslu í desember í fyrra, að setja inn sólarlagsákvæði fyrir úrræðið. Það þýðir að úrræðið verður í gildi út árið 2024 en svo endanlega aflagt. Hann segir að það væri óeðlilegt að viðhalda kerfinu umfram þann tímapunkt.“

„Við höfum alveg haft hug á því að hætta fyrr en í kjaraviðræðum þá hefur það oft komið fram frá ákveðnum aðilum innan verkalýðshreyfingarinnar að það sé nauðsynlegt að hafa þetta inni til þess að koma með ávinning til þeirra hópa.“

Er þetta ekki dæmigert? Aðgerð fyrir þau best settu og þau hin, sem verr eru sett, fá engar ´ámóta aðgerðir sem hentar þeim.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: