- Advertisement -

Báðir meðmæltir rannsókn vegna aksturspeninga Ásmundar

Björn Leví Gunnarsson.
Þess vegna tel ég nauðsyn­legt að segja að það er rök­studd­ur grun­ur um að Ásmund­ur Friðriks­son hafi dregið að sér fé, al­manna­fé,

Stundum hafa Píratar og Páll Magnússon verið í einum og sama bátnum. En róið í sitthvora áttina. Píratar vilja að akstursreikningar Ásmundar Friðriksson verði rannsakaðir. Það vildi Páll einnig.

Í nýrri Moggagrein skrifar Björn Leví Gunnarsson:

„Þess vegna tel ég nauðsyn­legt að segja að það er rök­studd­ur grun­ur um að Ásmund­ur Friðriks­son hafi dregið að sér fé, al­manna­fé, og við erum ekki að sjá viðbrögð þess efn­is að það sé verið að setja á fót rann­sókn í þeim efn­um. Ég segi þetta þrátt fyr­ir að ég viti að þessi um­mæli hafi verið sögð brjóta gegn siðaregl­um alþing­is­manna – vegna þess að um­mæl­in voru og eru rök­studd; af viður­kenn­ingu Ásmund­ar í Kast­ljósi og síðar með end­ur­greiðslu á um­rædd­um akst­urs­greiðslum. Ég segi þetta án þess að hafa aðgang að nein­um öðrum gögn­um en hafa birst op­in­ber­lega í fyr­ir­spurn­um mín­um til þing­for­seta. Ég segi þetta af því að það ætti að vera öll­um aug­ljóst að niðurstaða siðanefnd­ar um þessi um­mæli er staðreynda­lega röng.“

Páll Magnússon:
Nú vill þannig til að það eru hæg heimatökin hér í þinginu að ganga úr skugga um þetta…

Mál Ásmundar var til umræðu í Alþingi í nóvember 2018. Þórhildur Sunna Ævarsdóttur hafði sagðt í Silfrinu að Ásmundur hefði dregið sér peninga.

Páll Magnússon lýsti vilja sínum til þingrannsóknar á háttarlagi Ásmundar. Á Miðjunni stóð:

„Hún staðhæfði að nafngreindur þingmaður lægi undir rökstuddum grun um glæp, um fjársvik,“ sagði Páll. „Nú vill þannig til að það eru hæg heimatökin hér í þinginu að ganga úr skugga um þetta því að sá grunur hlýtur þá að vera fyrir hendi hjá þeim aðila sem á að hafa eftirlit með því sem hér er á ferð, þ.e. hann hlýtur að vera fyrir hendi hjá þinginu sjálfu eða skrifstofu þess,“ sagði hann.

 „Stjórn þingsins eða skrifstofa þingsins getur núna gengið úr skugga um það, hún getur kveðið upp úr um það, hvort þessi grunur sé fyrir hendi. Hvort fölskum faktúrum hafi verið framvísað, hvort fé hafi verið svikið út úr Alþingi með þessum hætti, hvort að slík könnun sé í gangi eða hvort fyrir liggi hjá þinginu, hjá eftirlitsaðilanum, rökstuddur grunur um að þetta hafi verið gert. Úr þessu er hægt að fá skorið hér í þinginu, hjá okkur sjálfum. Því annars er þetta ekki rökstuddur grunur háttvirtur þingmaður heldur það sem mig grunar, órökstuddar dylgjur,“ sagði Páll.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: