- Advertisement -

Bann sett á Húsgagnahöllina

„Neytendastofa taldi því rétt að banna Húsgagnahöllinni að viðhafa þessa viðskiptahætti.“

„Neytendastofa hefur tekið ákvörðun gagnvart Húsgagnahöllinni vegna kynningar fyrirtækisins á lækkuðu verði án þess að geta sýnt fram á raunverulega verðlækkun,“ segir á vef Neytendastofu.

„Neytendastofa bárust ábendingar þar sem kvartað var yfir því að sófi hafi ekki verið til sölu á því verði sem var tilgreint sem fyrra verði. Í svörum Húsgagnahallarinnar kom fram að félagið hafi skýrar verklagsreglur um afslætti og tilboð og reglurnar séu gerðar í samræmi við lög, reglur og ákvarðanir Neytendastofu. Mannleg mistök hafi orðið við uppfærslu á vef félagsins sem leiddu til þess að umrædd vara var ranglega merkt sem afsláttarvara,“ segir á sama stað.

„Í ákvörðun Neytendastofu var vísað til þess að vörur þurfa alltaf að hafa verið seldar á fyrra verði. Fyrirtæki þurfa að geta sýnt fram á að svo með t.d. kvittunum eða gögnum úr bókhaldi að svo hafi verið. Það að mannleg mistök hafi átt sér stað hefur ekki áhrif á það hvort um brot sé að ræða gegn lögum um viðskiptahætti og markaðssetningu. Húsgagnahöllin hafi ekki lagt fram gögn til sönnunar á að umrædd vara hafi verið seld á tilgreindu fyrra verði.“

Og úrskurðurinn: „Neytendastofa taldi því rétt að banna Húsgagnahöllinni að viðhafa þessa viðskiptahætti.“

Hér má sjá úrskurðinn.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: