- Advertisement -

Bjölluat á Alþingi

Stjórnmál „Markmið þessa frumvarps er að leggja bann við verðtryggingu neytendalána, ekki síst lána til kaupa á húsnæði,“ þannig hljómar upphaf greinagerðar frumvarpsins, sem Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Helgi Hjörvar lögðu fram á Alþingi, frumvarp til laga um bann við verðtryggingu.

„Ég tel ekki rétt að banna þessi lán. Ég tel rétt að fólk fái aukið valfrelsi og að við reynum að þróa lánamarkaðinn þannig að hlutfall óverðtryggðra lána hækki,“ sagði Árni Páll, formaður Samfylkingarinnar, í viðtali á Rás tvö vegna frumvarpsins.

Kenningar eru uppi um að þingmennirnir hafi lagt frumvarpið fram til að storka Framsóknarflokki sem gekk til síðustu kosninga með loforð um afnám verðtryggingar á oddinum.

Að frumvarp þeirra tvímenninganna sé nokkurskonar bjölluat. Ef svo er hefur það ekki heppnast sem best, allavega ekki enn. Eini sem hefur firrst við er formaður þeirra eigin flokks.

Árni Páll Árnason segir stefnu Samfylkingarinnar skýra. Flokkurinn vilji afnema verðtryggingu en með því að taka upp annan gjaldmiðil. „Sterkan gjaldmiðil sem hægt er að hafa viðskipti með utan landsteinanna og þar með losna við verðtryggingu sem megin reglu á íslenskum lánamarkaði.“ Stefna flokksins væri að auka vægi óverðtryggðra lána en ekki að afnema verðtryggingu.

Af þessu er augljóst að þingmennirnir og formaðurinn tala í sitt hvora áttina.

Gengur það „Þessir tveir þingmenn eru þeirrar skoðunar og það er eðlilegt að það rúmist ólíkar skoðanir innan flokksins,“ sagði formaðurinn.

Verðtryggingin og ESB

„Samfylkingin hefur haft þá stefnu að besta leiðin til að afnema verðtryggingu sé að ganga í Evrópusambandið og taka í kjölfarið upp evru sem gjaldmiðil,“ segir í greinagerðinni með frumvarpinu.

„Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hefur gert ótímabundið hlé á aðildarviðræðum og vill að krónan verði framtíðargjaldmiðill þjóðarinnar. Það er því ljóst að leið Samfylkingarinnar til afnáms verðtryggingar er ekki fær um sinn og nauðsynlegt að leita annarra leiða.“

Árni Páll kýs verðtryggingu

„Það er eðlilegt í lýðræðissamfélagi, þar sem við búum við gríðarlega veikburða gjaldmiðil, að fólk hafi rétt til þess að verja sig gegn sveiflum í gjaldmiðlinum. Ef menn vilja verja sig gegn sveiflukenndum húsnæðisafborgunum þá er verðtryggingin líklega skásta leiðin til þess í dag en hún er vissulega mjög dýr.“ Sjálfur sagðist Árni Páll vera með verðtryggt húsnæðislán og að hann treysti sér ekki til að breyta því í óverðtryggt af ótta við sveiflur.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: