- Advertisement -

Bogi Ágústsson

Fyrir nokkuð mörgum árum síðan var ég sem oftar gerður ábyrgur fyrir að gera leikskrá vegna komandi leikja hjá KR. Muni ég rétt var þetta vegna Evrópuleiks eða bikarúrslitaleik. Sagan er sú sama hvort eð er.

Þetta var stærra blað en svo að einn maður gæti gert þetta allt. Ég hringdi i nokkra KR-inga til að leita hjálpar. Einn þeirra var Bogi Ágústsson, þá fréttastjóri sjónvarpsins. Hann sagði strax já.

Einum eða tveimur dögum síðar hringdi Bogi til að bera undir mig hvort ég vildi að hann færi ásamt Stásu, Steinunni Ásu Þorvaldsdóttur, niður á Austurvöll þar sem hann myndi hjálpa henni að skrifa um viðtöl sem hún tæki við sína uppáhaldsleikmenn. Ég sagði að sjálfsögðu já.

Svo skemmtilega bar við að sólin skein á Austurvelli þegar Bogi og Stása hittu leikmennina. Úr þessu varð hið allra, allra besta efni. Í mínum huga lýsti þetta hversu góður og gegnheill maður Bogi er. Og hugmydaríkur.

Ég hef oft sagt þessa fallegu sögu. Og geri það enn og aftur nú á merkum timamótum í lífi Boga Ágústssonar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: