- Advertisement -

Davíð örlagavaldur að borgarstjóratíð Ólafs F. Magnússonar

Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, skrifaði á Facebook:

„Örlagaríkur dagur 17. janúar 2008. Daginn sem Fischer dó varð nýtt upphaf milli mín og Sjálfstæðisflokksins, fyrir tilstilli Davíðs Oddssonar.

Á sextugsafmæli Davíðs Oddssonar í Ráðhúsi Reykjavíkur 17. janúar 2008 tók ég í útrétta samstarfshönd Davíðs Oddssonar og myndaði meirihluta með sjálfstæðismönnum í borgarstjórn viku síðar, 24. janúar 2008.“

Það var þá handtak Davíðs sem leiddi Ólaf F. og hans gamla flokk. Sjálfstæðisflokkinn saman. Sem varð síðan til þess að Ólafur, þá í Frjálslyndaflokknum, myndaði meirihluta með Sjálfstæðisflokki. Meirihluta sem varð ekki langlífur.

Ólafur orti nú af þessu tilefni:

17. janúar 2008.

Á sextugsafmæli Davíðs dó

drengur góður – Fischer var.

Erfiður maður – elskaður þó

á Íslandi kembdi hærurnar.

Vinabönd þá voru efld

verðug mín leið á tindinn lá.

Fléttan var síðar að fullu tefld

forystunni ég hlaut að ná.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: