- Advertisement -

Eigum ekki að leita efnahagslegrar töfralausnar í kerfi sem glímir sjálft við djúpstæðan samkeppnishæfnisvanda

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar:

„Áður en við tökum eina stærstu ákvörðun sem íslenska þjóðin hefur staðið frammi fyrir um árabil eigum við ekki einungis að horfa á vandamálin hér heima, sem ríkisstjórnin hefur engin svör við, heldur líka á stöðuna í Evrópu.

Viðvörunarorðin koma ekki frá andstæðingum ESB. Þau koma frá Mario Draghi og Enrico Letta, sem unnu ítarlegar skýrslur fyrir stofnanir sambandsins, en einnig frá evrópsku atvinnulífi. Þar er dregin upp skýr mynd af dvínandi samkeppnishæfni, lítilli framleiðniaukningu, flóknu regluverki, háum orkukostnaði og skorti á fjárfestingu.

ESB er mikilvægur samstarfsaðili Íslands og verður það áfram. En samstarf og aðild eru ekki sami hluturinn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við eigum ekki að leita efnahagslegrar töfralausnar í kerfi sem glímir sjálft við djúpstæðan samkeppnishæfnisvanda.

Um þetta skrifaði ég í grein sem birtist á Vísi.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: