Ógnin frá Kína og eftir atvikum Rússum er engin á þessum slóðum.
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Alþingi: Sigmundur Ernor Rúnarsson Samfylkingu:
„Við þurfum hér í þingsal að reisa fána Grænlands og reisa hann hátt við hún í íslenskri umræðu. Við þurfum að sýna Grænlendingum óskorað traust og stuðning á viðsjárverðum tímum. Þetta land er í 290 km fjarlægð frá Íslandi. Þetta er okkar helsti nágranni. Við þurfum að taka af allan vafa um að við stöndum með Grænlendingum á komandi tímum. Orðið fullveldi og frjáls þjóð er í húfi,“ sagði Sigmundur Ernir Rúnarsson.
„Hér er öllu snúið á hvolf hvað varðar ásælni Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi. Hann hefur aðgang að 17 herstöðvum. Hann hefur aðgang að þeim málmum sem hann langar að taka úr jörðu. Ógnin frá Kína og eftir atvikum Rússum er engin á þessum slóðum. Hún er hins vegar við Beringssund, á milli Rússlands og Alaska, eins og allir sérfræðingar um hernaðarmál hafa marglýst yfir á síðustu vikum og dögum.
Það er bein árás á næsta nágrannaríki okkar, Grænland.
En, frú forseti, við þurfum að hafa í huga að ef við ætlum í málflutningi okkar að strjúka hærum Bandaríkjaforseta réttsælis þá erum við að gjaldfella orðið fullveldi. Við erum að gjaldfella orðið frjáls þjóð. Við erum að gjaldfella orðið mannréttindi. Við erum að gjaldfella flest ef ekki öll okkar gildi sem lýðræðisþjóð. Við erum að hampa manni sem er tilbúinn að fórna öllum þessum gildum sem við sem þingheimur höfum trúað á, ég held allir hér inni, í allri okkar pólitík. Nei, við getum ekki strokið hærum Bandaríkjaforseta réttsælis í þeim málflutningi sem hann heldur uppi. Það er bein árás á næsta nágrannaríki okkar, Grænland. Höfum það í huga í okkar málflutningi.“