Vísir: Aðildarríki Evrópusambandsins samþykktu tillögu um verndartolla á innflutt járnblendi á fundi í morgun. Framkvæmdastjórnin segist ætla að eiga í reglulegu samráði við íslensk og norsk stjórnvöld um aðgerðirnar.
Bæði íslensk og norsk stjórnvöld lögðu fast að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að veita þeim undanþágu frá tollunum en án árangurs. Bæði ríki eiga í efnahagsbandalagi við Evrópusambandið með EES-samningnum.
Aðgerðunum er lýst sem „mikilvægu skrefi“ til að vernda evrópskan járnblendiiðnað í tilkynningu frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Þar segir ennfremur að þó að Ísland og Noregur séu ekki undanþegin aðgerðunum séu þær sérstaklega hannaðar til þess að hafa lágmarksáhrif á virðiskeðjur í Evrópu. Noregur og Ísland framleiðan stóran hluta járnblendis í Evrópu.