- Advertisement -

Fjölmiðlar sitja kolfastir í rangölum þingnefndar Páls Magnússonar

„Mig langar að spyrja hæstvirtan menntamálaráðherra um frumvarp hennar sem átti að taka á vanda einkarekinna fjölmiðla fyrir tíma krónuveirunnar, en hefur nú um hríð verið statt einhvers staðar í rangölum allsherjar- og menntamálanefndar þar sem Sjálfstæðismenn sem þar ráða för hafa ekki verið beinlínis geislandi af ákefð að koma þessu máli áfram þó að það sé samkvæmt stjórnarsáttmála og þó að meiri hluti sé alveg áreiðanlega fyrir þessu máli hér inni,“ sagði Guðmundur Andri Thorsson Samfylkingu.

Páll Magnússon Sjálfstæðisflokki er formaður þingnefndarinnar.

Guðmundi Andra lék forvitni á að vita fleira: „Hvað finnst hæstvirtum ráðherra um þessi vinnubrögð samstarfsflokksins sem áður hafði samþykkt frumvarpið í þingflokki og ríkisstjórn? Telur hún að það dugi að fara leið Sjálfstæðismanna, eins og hún hefur verið unnin hér á vettvangi þingsins til að taka á þessum vanda einkarekinna fjölmiðla? Telur ráðherrann mikilvægt að frumvarp hennar um vanda einkarekinna fjölmiðla nái fram að ganga á þessu þingi og telur ráðherrann það líklegt?“

Lilja Alfreðsdóttir svaraði Guðmundi Andra: „Ég þakka háttvirtum þingmanni fyrir góð og hlý orð til Sjálfstæðisflokksins og fjölmiðla í landinu. Það er alveg ljóst að það er metnaðarmál hjá ríkisstjórninni að styðja við íslenska fjölmiðla. Það er mjög brýnt fyrir tungumálið okkar, það er mjög brýnt vegna þeirrar lýðræðislegu umræðu sem fjölmiðlar veita og síðast en ekki síst vegna þess aðhalds sem fjölmiðlar veita í landinu, bæði atvinnulífi, stjórnmálum og hverju sem um er að ræða,“ sagði Lilja og hélt áfram:

„Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er getið um það að við ætlum að styðja við einkarekna fjölmiðla. Nú hefur ríkisstjórnin ákveðið að verja 400 milljónum í þágu einkarekinna fjölmiðla og það er úrlausnarefni þeirrar sem hér stendur að vinna úr því með reglugerð. Ég hef hins vegar fulla trú á því, vegna þess sem stendur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, að ríkisstjórnin vinni sig í gegnum þetta mál. Nefndir taka sér oft ágætistíma í að vinna að málum og framgangi þeirra. Ég hef átt mjög gott samstarf við formann allsherjar- og menntamálanefndar og ég er sannfærð um og veit það að hann hefur miklar áhyggjur af þessum vanda eins og sá flokkur sem hann situr fyrir.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: