- Advertisement -

Fyrirlitning valdastéttarinnar

Ályktun Sósíalistaflokksins:

Sú fyrirlitning sem valdastéttin hefur sýnt kvennastörfum á vinnumarkaði hefur komið rækilega í ljós í þessum veirufaraldri sem hefur geisað á Íslandi nú í tvo mánuði. Hjúkrunarfræðingar hafa verið án kjarasamninga í langan tíma og enginn vilji virðist vera til að semja almennilega við þá. Talað er um hjúkrunarfræðinga sem hetjur og algerlega ómissandi. En hetjur þessar eru ekki meira virði en svo að þeir eiga ekki skilið mannsæmandi laun?

Eflingarfólk hefur einnig staðið í kjarasamningaviðræðum. Viðræðurnar höfðu ekki borið árangur sem erfiði og var verkfall skollið á. Þegar ljóst var í hvað stefndi með Covid-19 ákvað Eflingarfólk samt að taka tillit til aðstæðna og gerði hlé á verkföllum þar til ástand væri orðið betra og meira öryggi í samfélaginu.

Þeir eru ófáir sem hafa skoðun á því að Eflingarfólk ætlar að hefja verkfall sitt að nýju 5. maí næstkomandi. Skoðanirnar eru misjafnar en þeir eru þó nokkrir sem fussa og sveia yfir því að Eflingarfólkið sýni ekki tillitssemi miðað við ástandið sem er í dag.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það var klárt frá upphafi, þegar Efling ákvað að gera hlé á verkfallsaðgerðum að verkfall myndi hefjast að nýju þegar samkomubann myndi mildast. Þar á undan var búið að gefa ríflegar undanþágur  til að hægt væri að sinna gamla fólkinu og þeim sem þurfa aðhlynningu og hjálp í sínu daglega lífi. Þegar hlé var gert á verkfallinu var enginn sem reyndi að nálgast Eflingu og koma í veg fyrir boðaðar aðgerðir að ástandi loknu.

Eflingarfólk er að stærstum hluta konur, eða 80%. Konur sem að sinna umönnunarstörfum og þrifum meðal annars. Konur sem hafa verið ómissandi starfsfólk í þessum heimsfaraldri sem við göngum í gegnum. Þessar konur mættu í vinnu á hverjum degi og settu líf sitt og fjölskyldna sinna í hættu fyrir laun sem að duga ekki til að eiga í sig og á.

Við, undirrituð, erum fólk í sósíalistaflokknum og skilgreinum okkur sem sósíalíska femínista. Við lýsum hér með yfir algerum stuðningi við aðgerðir Eflingar og vonum að þau bæjarfélög sem koma að samningaborðinu sjái sóma sinn í því að koma að því með opnum hug og réttlátu hugarfari. Það er kominn tími til að þeir sem eru ómissandi í kerfinu okkar fái laun í samræmi við það.

Í dag er 1. maí, alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins, og ærið tilefni til að standa upp fyrir verkalýðnum og segja: Áfram Efling!

  • Arna Þórdís Árnadóttir
  • Margrét Pétursdóttir
  • Elísabet Ýr Atladóttir
    Candice Michelle Goddard
  • Ynda Eldborg
  • María Pétursdóttir
  • Elsa Björk Harðardóttir
  • Birna Eik Benediktsdóttir
  • Sigrún Jónsdóttir
  • Pála Sjöfn Þórarinsdóttir
  • Laufey Líndal Ólafsdóttir
  • Elísabet Einarsdóttir
  • Sanna Magdalena Mörtudóttir
  • Agnes Erna Estherardóttir
  • Ester Bíbí Ásgeirsdóttir
  • Jóna Guðbjörg Torfadóttir
  • Óskar Steinn Gestsson
  • Margrét Rósa Sigurðardóttir
  • Elín Vigdís Ólafsdóttir
  • Bára Jóhannesdóttir Guðrúnardóttir
  • Sonja B. Jónsdóttir
  • Hlynur Már Vilhjálmsson
  • Birna Gunnarsdóttir
  • Kristín Bjarnadóttir
  • Rán Reynisdóttir
  • Erna Hlín
  • Jóhann S. Vilhjálmsson
  • Auður Sighvatsdóttir

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: