- Advertisement -

Gjaldeyrishöft og það strax

Fjármagnseigendur hafa fellt gengið um að minnsta kosti 12% undanfarnar þrjár vikur.

Þór Saari:
Algjört grundvallaratriði áður en farið er af stað með svona gríðarlegan stuðning við fyrirtækin er að það verði fyrst kannað hvað þau hafa verið að greiða eigendum sínum í arð undanfarin tvö ár. Þeim arði ætti að skila til baka, alla vega að hluta, og á móti þeim fjármunum kæmi framlag frá ríkinu, króna á móti krónu sem hlutafé.
Eins þarf að tryggja að ekki verði áframhald á þeim fjármagnsflótta úr landi sem þegar er byrjaður, en fjármagnseigendur hafa fellt gengið um að minnsta kosti 12% undanfarnar þrjár vikur. Gjaldeyrishöft og það strax.
Frestun á skattgreiðslum er skynsamleg sem og aukning barnabóta og flýtun á framkvæmdum.
Endurgreiðsla virðisaukaskatts á framkvæmdum er óþörf þar sem samdrátturinn hefur ekki áhrif í þeim geira, alla vega ekki strax.
Styrkurinn sem boðaður er til ferðaþjónustunnar, 4.000 kr. gjafabréf, er hlægilegur. Miklu frekar ætti að styðja við aðalfyrirtækið í þessum geira og það sem er þjóðhagslega mikilvægast, Flugleiðir, hinum fyrirtækjunum má sinna eftir tvo til þrjá mánuði, það er þeim sem eru þá ekki farin á hausinn. Það gengur bara ekki að moka fé í viðskiptamódel fyrirtækja sem þola ekki tveggja til þriggja mánaða samdrátt í tekjum. Kaupþingslánið fræga sem tæmdi gjaldeyrisvarasjóð þjóðarinnar lak úr landi og „týndist“. Þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar benda til þess að sá atburður endurtaki sig. Ástæðan er einföld og vel þekkt. Vanhæf ríkisstjórn.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: