- Advertisement -

Guðmundur Árni fer í framboð

Guðmundur Árni Stefánsson skrifar:

Góðu vinir.

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til framboðs vegna komandi bæjarstjórnarkosninga í Hafnarfirði fyrir Samfylkinguna – jafnaðarmannaflokk Íslands. Fyrsta skrefið í þeirri vegferð er þátttaka í prófkjöri flokksins sem fer fram 12.febrúar næstkomandi þar sem ég óska eftir stuðningi í 1.sæti listans.

Umliðin rúm 16 ár hef ég starfað í utanríkisþjónustunni sem sendiherra, m.a. í Stokkhólmi, Washington, Nýju Delí og nú síðast á slóðum Vestur- Íslendinga í Winnipeg í Kanada. Þessara starfa hef ég notið til fullnustu og öðlast vini og nýja reynslu. Í desember síðastliðinum óskaði ég eftir heimflutningi vegna fjölskylduaðstæðna og einnig verð ég í leyfi næstu mánuði frá störfum í utanríkisráðuneytinu.

Á síðustu vikum hafa margir jafnaðarmenn í Hafnarfirði sett sig í samband við mig og óskað eftir því að ég legði lið við að styrkja stöðu jafnaðarmanna í bænum, en honum hefur verið stjórnað af Sjálfstæðisflokknum umliðin átta ár, en Samfylkingin verið í minnihluta. Áður og fyrr stjórnuðu jafnaðarmenn í Hafnarfirði, þegar kraftur og framsýni í samstarfi við bæjarbúa var einkennandi.

Ég hef ákveðið að verða við þessu kalli og er þess fullviss, að með góðri liðsheild, skýrri stefnu og markvissum vinnubrögðum geti Samfylkingin orðið stærsti flokkur bæjarins. Fái ég stuðning flokksfélaga minna í prófkjörinu, þá stefni ég óhikað að því að Samfylking vinni góðan sigur í bæjarstjórnarkosningum í maí og tvöfaldi bæjarfulltrúatölu sína, þ.e. úr tveimur í fjóra. Og að afloknum kosningum geti Samfylkingin í góðu samstarfi við aðra flokka tekið við forystu um stjórn bæjarins.

Það er sannarlega verk að vinna í Hafnarfirði og í mörg horn að líta. Átta ára þreytuleg valdatíð Sjálfstæðisflokksins í bænum kallar á ný vinnubrögð þar sem verkin þurfa að tala í samráði við ólíka hópa og einstaklinga. Ég veit að Samfylkingin er tilbúin í þau verk. Málaflokkarnir þar sem þarf að taka á eru um allt; má nefna mál sem varða skipulag, félagsmál, atvinnumál, leikskóla, grunnskóla, íþróttir, loftlag, jafnrétti, húsnæði fyrir alla, svo fátt eitt sé talið.

Það er mikilvægt að allir Hafnfirðingar geti verið stoltir af bænum sínum. Það kallar á ný vinnubrögð, opið stjórnkerfi, kraftmikla uppbyggingu og virka aðkomu bæjarbúa að endurbótum.

Ég hætti í pólitík 2005. Hafði þá setið í bæjarstjórn í Hafnarfirði í 12 ár, þar af bæjarstjóri í 7 ár. Og síðan þingmaður í 13 ár, þar af ráðherra í hálft annað ár.

Ég hef því allnokkra reynslu að baki, en einnig kem ég að þessum verkum fullur af krafti og eftirvæntingu eftir að hafa sinnt öðrum störfum um árabil. Það er verk að vinna. Hafnarfjörður hefur alla burði til að vera fyrirmyndarsveitarfélag, en snúa þarf vörn í sókn. Ég vil gjarnan taka þátt í þeirri uppbyggingu með ungum jafnt sem eldri Hafnfirðingum á næstu árum.

Ég hlakka til baráttunnar sem framundan.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: