„Við getum verið sammála um eitt grundvallaratriði. Öryggi og lífskjör Íslendinga ráðast að miklu leyti af því að við stöndum með sterkum bandamönnum og nýtum tækifærin sem opnast í frjálsum og sanngjörnum viðskiptum. Með þetta í huga heimsóttum við Washington D.C. í september og áttum fjölda mikilvægra funda með þingmönnum Repúblikanaflokksins og öðrum áhrifamiklum ráðamönnum.
Markmiðið var skýrt: Að efla tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna á sviði viðskipta og öryggismála og færa umræðuna frá orðum yfir í framkvæmdir. Í þessum samtölum kom skýrt fram að þótt við stöndum frammi fyrir áskorunum þá liggja líka mikil tækifæri fyrir Ísland í nánara samstarfi við helsta bandamann okkar, Bandaríkin.“
Þetta er upphaf Moggagreinar formanns og varaformanns Sjálfstæðisflokksins, þeirra Guðrúnar Hafsteinsdóttur og Jens Garðar Helgason. Þau sem eru áskrifendur að Mogganum geta lesið framhaldið.