- Advertisement -

„Held ekki að við höfum gengið of langt“

„Ég held ekki og ég held að þarna séu aðilar sem að raunar hafa alveg sömu hagsmuni og þrýsta á stjórnmálin, það er að segja að vilja frekar einhvers konar skammtímaábata fyrir sig en langtímaábata fyrir samfélagið allt og ég skil það bara mjög vel. Ég held ekki að við höfum gengið of langt. Ég held að þetta sé algjörlega óumflýjanlegt og mjög mikilvægt,“ svaraði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra spurningu fréttakonu Vísis, hún spurði; gekkstu of langt þegar kemur að gjalda- og skattahækkunum?

Daði hélt áfram:

„Reynslan af kjarasamningunum frá 2024 sé að sú kenning að verðbólga á Íslandi sé til komin vegna agaleysis á vinnumarkaði standi ekki eins sterk og hún gerði í aðdraganda þeirra samninga.

Þar voru gerðir mjög hóflegir samningar. Við höfum samt ekki náð niður verðbólgunni. Þannig að það þarf fleira til. Ég hef farið yfir það núna með þér að ég held að ríkisfjármálin skipi þar algjörlega lykilsess og þar af leiðandi held ég að þetta séu réttar ákvarðanir.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Viðtalið er að finna á Vísi.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: