- Advertisement -

Hvar eru frelsishetjurnar í Sjálfstæðisflokknum?

„…og þingaðgerðasinn­ar Pírata ekki held­ur…“ segir í leiðaranum.

„Þar ræðir um þings­álykt­un­ar­til­lögu Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur for­sæt­is­ráðherra um aðgerðaáætl­un gegn hat­ursorðræðu,“ segir í leiðara Moggans í dag. Mogginn er andsnúinn tillögu forsætisráðherra, sem meðal annars skikkar opinbera starfsmenn á námskeið í viðleitni til að útrýma hatursorðræðu.

„Samt er það svo að í þing­inu hef­ur eng­inn nema Miðflokk­ur­inn bent á hætt­urn­ar, sem fylgja þess­ari þings­álykt­un­ar­til­lögu. Frjáls­ræðis­hetj­urn­ar í Sjálf­stæðis­flokkn­um virðast ekk­ert kippa sér upp við þetta og þingaðgerðasinn­ar Pírata ekki held­ur,“ spyr leiðarahöfundur, sem að venju gefur ekki upp nafn sitt.

Lesum aðeins meira:

„Eru þó næg dæmi utan úr heimi um hvernig svona fyr­ir­ætlan­ir snú­ast undantekningarlaust upp í and­hverfu sína, en hér heima þekkj­um við vel hvernig menn flokka umræðuna eft­ir því hvort hún hitt­ir þeirra menn fyr­ir eða hina. Og hver á að dæma um hvað er hat­ursorðræða og hvað bein­skeytt umræða? Flokks­hest­ar Vinstri-grænna?“

Mogginn er sýnilega ósáttur með eigin þingmenn. Vill að þeir verji blessað frelsið betur en svo að láta tillögu Katrínar yfir sig ganga. Svo langt teygir Mogginn sig að freistar þess að fá hjálp frá Pírötum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: