- Advertisement -

Ísaksskóli borgar borginni 457 milljónir

Borgarráð:

Skóli Ísaks Jónssonar hefur keypt skólahúsið við Bólstaðarhlíð af Reykjavíkurborg.

„Með sölunni er fylgt eftir því fyrirkomulagi sem Reykjavíkurborg og skólinn sömdu um árið 2011, þegar borgin keypti húsnæðið en skólanum var jafnframt tryggður kaupréttur til 15 ára með það að markmiði að hann gæti eignast húsnæðið á ný þegar fjárhagsstaða leyfði. Kaupverðið er rúmar 456,8 m.kr. og tekur mið af upphaflegu kaupverði, þróun byggingarvísitölu og kostnaði Reykjavíkurborgar vegna meiriháttar viðhalds síðustu ára. Með samningnum eignast skólinn á ný húsnæðið sem hann hefur starfað í og haft til umráða um árabil. Jafnframt er mikilvægt að Reykjavíkurborg heldur forkaupsrétti að fasteigninni verði hún síðar seld til utanaðkomandi aðila. Það er ánægjulegt að Skóli Ísaks Jónssonar eignist aftur húsnæðið sem hefur verið heimili skólans um árabil. Það styrkir sjálfstæði skólans og skapar traustari umgjörð um starfsemi hans til framtíðar,“ segir í bókun í borgarráði.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: