- Advertisement -

Jók strandveiðakvótann um 2.700 tonn

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur bætt við 2.700 tonnum til strandveiða.

„Í gær undirritaði ég reglugerð sem eykur aflaheimildir til strandveiða um 2.700 tonn eða úr 10.650 tonnum í 13.350 tonn.

Það er ánægjuefni að strandveiðivertíðin í ár verði sú allra stærsta frá upphafi, þrátt fyrir samdrátt í heildarafla síðustu ár. Það er mikilvægt að efla strandveiðar, enda tryggja þær beint aðgengi að þjóðarauðlindinni, styðja við nýliðun í greininni og skapa mikil verðmæti.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: