Erlent:
Guðmundur Andri Thorsson skrifaði:
„Trump er ekki bara að tapa stríðinu gegn Íran heldur hefur honum greinilega mistekist að leggja undir sig Grænland. Danir eru að vísu óvenju kurteisir sigurvegarar og reyna að segja sem minnst en niðurstaðan af brölti Trumps virðist sú að Bandaríkjunum sé nú heimilt að stunda hernaðaruppbyggingu á Grænlandi sem alltaf hefur staðið til boða og Bandaríkjamenn hafa sjálfir verið misáhugasamir um.
Hér sem víðar er Trump að sparka upp opnum dyrum með miklum fyrirgangi. Með núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum er þetta vissulega kvíðvænlegt og sporin hræða; sagan af nauðungarflutningum fyrir Thule herstöðina er ljót, en yfirráð yfir Grænlandi fékk hann hins vegar ekki. Þetta sýnir að það borgar sig að standa í lappirnar gagnvart þessum yfirgangssegg, eineltishrotta og hávaðabelg, eins og öðrum.“