- Advertisement -

Katrín, orðið er Samherji

„Á meðan við spólum í sama farinu með því að ræða alltaf bara einstök mál þá komumst við ekkert áfram, því að við þurfum kerfisbreytingar til að ná raunverulegum árangri,“ sagði Katrín Jakobsdóttir á Alþingi í gær þegar rætt var um traust fólks á stjórnmálum. Flestum var Samherjamálin efst í huga.

Katrín vill sem sagt, áður en þingið lætur þau mál til sín taka, vinna að kerfisbreytingum. Síðari ræðu sína endaði hún svona:

„Að lokum, herra forseti skiptir máli fyrir Alþingi sem einn aðila málsins að við skoðum öll líka hvernig framganga okkar er og hvort hún er til þess fallin að auka traust á Alþingi.“

Katrínu tókst að flytja tvær ræður um spillingu án þess að nefna Samherja á nafn.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: