- Advertisement -

Kröftunum varið í vandræðaleg rifrildi

„Verðbólga jókst um helming milli ágúst 2022 og 2023 sem er einsdæmi.“

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.
Oddvitarnir þrír, Bjarni, Katrín og Sigurður Ingi.
Skjáskot: Silfrið. Samsetning: Miðjan.

„Dagskrá Alþingis stendur nánast auð þessa dagana. Ekkert heyrist frá ríkisstjórnarflokkunum um hvernig ríkisstjórnin ætlar að koma böndum á verðbólgu. Forystan ver öllum kröftum í vandræðaleg rifrildi. Öll starfsorka ríkisstjórnarinnar fer í að reyna að lifa þetta samstarf af. Stærsta verkefni samfélagsins liggur óhreyft á meðan; glíman við verðbólgu og ógnarháa vexti,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Viðreisn.

„Í sterkri umsögn BHM um fjárlagafrumvarpið bendir bandalagið á merkilegar staðreyndir um veruleika almennings. Kaupmáttur meðallauna hefur sveiflast fjórum sinnum meira síðastliðin 20 ár á Íslandi en kaupmáttur innan OECD-landa. Verðbólga jókst um helming milli ágúst 2022 og 2023 sem er einsdæmi. Þessi óstöðugleiki hagkerfisins er okkar helsta meinsemd og almenningur er langþreyttur á ástandinu. Vextir eru rúmlega tvöfaldir á við nágrannalönd. Fólk sem nýlega keypti fasteign og er með mikil útgjöld vegna barna og námslána finnur mjög rækilega fyrir ástandinu. Þetta er millistéttin á Íslandi. Ríkisstjórnin hefur hins vegar engin svör fyrir þetta fólk og þessi hópur er skilinn eftir,“ sagði hún.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.
Skjáskot: Silfrið.

„Jöfnuður í tekjum er meiri á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum og nú blasir við stöðnun um lífskjör, ekki síst hjá millistéttinni, fólki sem greiðir háa skatta og finnur rækilega fyrir vaxtahækkunum. En af hálfu BHM hefur komið fram að 70% skatta og gjalda eru borin af þriðjungi þjóðarinnar. Í þessum hópi er meginþorri háskólamenntaðra. Á fólk ekki að sjá ávinning í háskólamenntun eða í því að búa á Íslandi eftir háskólanám? Hagfræðistofnun Íslands hefur bent á launaþróun á Íslandi frá aldamótum. Laun háskólamenntaðra hafa þar staðið í stað, laun ófaglærðra hafa hækkað nokkurn veginn jafnt og þétt. Það er auðvitað af hinu góða að laun ófaglærðra hækki en það er áhyggjuefni, hitt, hvernig við verðleggjum menntun, að þau laun hafi ekkert hækkað og ég velti því fyrir mér hvað framtíðarmynd er hér verið að teikna upp fyrir Ísland.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: