Mér heyrðist meira að segja þarna á drengjum í Verzlunarskólanum, sem njóta ef eitthvað er góðs af drengjakvóta þar, að þeir myndu eiginlega frekar vilja láta skeika að sköpuðu og hafa ekki kvóta.
Snorri Másson.
Snorri Másson Miðflokki talaði á þingi í gær um framhaldsskóla. Framhaldsskólanemendur, núverandi og fyrrverandi, komu á fund hjá allsherjarnefnd Alþingis.
„Það var gott að þeir voru fengnir fyrir nefndina, það var eitthvert hökt á því í vor að það yrði gert en það var afskaplega gagnlegt að þeir kæmu vegna þess að það kom margt mjög gagnlegt fram. Frumvarpið snýst um það sem við höfum talað um hérna, það sem stendur til, ef ég les upp úr greinargerðinni, með leyfi forseta:
„Í ljósi aukinnar umræðu um inngildingu í skólastarfi ásamt öðru er lagt til að ákvæði laganna um innritun í skóla verði endurskoðuð og skýr afstaða tekin til þess að heimilt sé að líta til annarra sjónarmiða en námsárangurs við innritun nemenda í framhaldsskóla.““
„Svo er bætt við þetta ýmsu „woke“ orðasalati…“
Vitnum áfram í Snorra: „Svo er bætt við þetta ýmsu „woke“ orðasalati um að allir framhaldsskólar eigi að axla ábyrgð á fjölbreyttum nemendahópi og annað eins. Með öðrum orðum, út frá alls konar þáttum eins og kyni og uppruna, er verið að veita skólum heimild og, ef maður les greinargerð frumvarpsins, hvetja þá til þess að horfa til þessara þátta og búa til alls konar kvótakerfi í kringum það. Það verður ekki öðruvísi lesið úr frumvarpinu.
Það var áhugavert að fá unga fólkið fyrir nefndina vegna þess að manni líður stundum eins og það sé gefið í skyn að unga fólkið sé nú allt einmitt vinstri sinnað og „woke“ og það styðji svona fyrirbæri. En það var alls ekki að heyra á þessu fólki heldur þvert á móti var miklu frekar verið að segja af hálfu unga fólksins: Við viljum bara geta sýnt fram á hreinan og beinan námsárangur í grunnskólanum og á grundvelli þess verði tekið inn. Það er eina leiðin til að tryggja sanngirni í innritun í framhaldsskóla, ekki að reisa ný og ný kvótakerfi utan um málin.
Mér heyrðist meira að segja þarna á drengjum í Verzlunarskólanum, sem njóta ef eitthvað er góðs af drengjakvóta þar, að þeir myndu eiginlega frekar vilja láta skeika að sköpuðu og hafa ekki kvóta. Nú er maður að vitna í fólk en það er alla vega þannig sem maður skynjar það á mörgum, að hafa frekar ekki kvóta og þá kannski komi fram raunveruleikinn í Verzlunarskólanum, að stúlkur séu með þessa yfirburði sem þær hafa í menntakerfinu. Þá getum við rætt það í stað þess að breiða yfir veruleikann með sífellt nýjum kvótum eins og þessi ríkisstjórn sér sem eina kostinn í stöðunni.“