- Advertisement -

Leiða á fjölskyldur til eignaleysis

Bjarni Benediktsson efnahagsmálaráðherra lætur sem sér komi ekki við hin miskunnarlausastaða sem er í efnahagsmálum. Merkilegt alveg hreint.

Með aðgerðarleysi eða vanmætti Bjarna og ríkisstjórnarinnar er búið að ákveða að leiða fjölskyldur, kannski nokkur þúsund til eignamissis. Við vitum öll að margar fjölskyldur ná ekki að bjarga sér í flóði síhækkandi skulda. Enn og aftur verður fótunum kippt undan fjölskyldum sem mun ekki ráða við verðbólguna og óstjórn efnahagsmála. Það er sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar séu tilbúnir að böðlast á fólki. Miskunnarlaust.

„Þeir vita mæta vel að þeir eru að fara að fórna heim­il­um ein­hverra fjöl­skyldna í land­inu eins og eft­ir efna­hags­hrunið. Fólk mun ekki geta staðið und­ir marg­faldri greiðslu­byrði. Þeir vita líka að þeir eru að ýta fólki út í eitraðan kokteil verðtrygg­ing­ar. Þetta er allt með ráðum gert,“ sagði Inga Sæland á mbl.is í dag.

„Stóra frétt­in í dag er að fjár­málaráðherra sé bú­inn að kasta frá sér ábyrgð á efna­hags­mál­um. Vegna þess að hann full­yrðir að það sé ekki hlut­verk rík­is­stjórn­ar­inn­ar að vinna bug á verðbólg­unni held­ur hlut­verk seðlabank­ans,“ sagði Kristrún Frosta­dótt­ir, formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, á sama stað og af sama tilefni.

Ríkisstjórnin er búin að vera. Þau verða að játa vanmátt sinn.

-sme


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: