Minn gamli ritstjóri, Össur Skarphéðinsson, skrifar aldeilis flotta og beitta grein um ESB umræðuna. Beinir spjótum sínum helst að Ólafi Ragnar Grímssyni vini sínum. Í lok greinarinnar segir Össur: „Það breytir engu um hið fornkveðna að vinur er sá er til vamms segir.“ Hér er hin merka grein Össurar Skarphéðinssonar:
Tvennt eftirtektarvert kom fram í Silfri vikunnar – fyrir utan hvað stjórnandanum voru mislagðar hendur.
Mikilvægast fannst mér að Guðrún Hafsteinsdóttir,sagði afdráttarlaust að yrði niðurstaða þjóðaratkvæðis síðar í mánuðinum JÁ, þá myndi Sjálfstæðisflokkurinn mæta af fullum þunga í samninga til að gæta hagsmuna Íslands. Sjálfstæðisflokkurinn mun því virða lýðræðið og hún sem formaður beita sér fyrir hagsmunum Íslendinga. Þetta var mjög mikilvæg yfirlýsing. Ef samningar bresta á mun þurfa allar raddir, ekki síst hinar skeptísku.
Að sama skapi var augljóst að Sigmundur Davíð, sem 2009 lagði fram tillögu um skilyrta aðild að ESB, ætlar ekki að virða þjóðarviljann. Sigmundur ætlar greinilega að beita Miðflokknum til að leggjast þvert gegn samningum ef þjóðin segir JÁ. Öðru vísi var ekki hægt að skilja hann. Sigmundur og Miðflokkurinn ætla því ekki að virða vilja meirihlutans ef niðurstaðan er honum ekki að skapi. Það er líka mikilvægt að vita.

Það breyttist ekki fyrr en hinn skörulegi forsætisráðherra skipaði Sigmundi að leyfa „konunni að tala!“. Formaður Miðflokksins halaði atkvæði í hrönnum yfir á JÁ-ið með makalausri framkomu sinni.
Silfrið var reyndar minnisstæðast fyrir hysteríska framkomu Sigmundar Davíðs sem reyndi með ofbeldi hávaðans að þagga niður í Ingu Sæland þegar hann hafði engar varnir gegn orðum hennar. Hún saltaði hins vegar “frammíkallinn“ einsog þykka síld í tunnu með tærum lýðræðisrökum. Í framhaldinu orgaði frammíkallinn svo ítrekað yfir Þorgerði Katrínu meðan stjórnandi sat hjá einsog blaktandi strá.
Það breyttist ekki fyrr en hinn skörulegi forsætisráðherra skipaði Sigmundi að leyfa „konunni að tala!“. Formaður Miðflokksins halaði atkvæði í hrönnum yfir á JÁ-ið með makalausri framkomu sinni.
Í umræðunni í sumar hefur fátt komið mér á óvart fyrir utan hvað hún hefur verið giska daufleg. Kanski helst að Já-hreyfingin hefur farið sér hægt, vonandi af því hún ætlar að toppa með látum. Hún hefur birst mér einsog ómótuð demókratísk fjöldahreyfing að því leyti að fyrir henni hafa ekki farið neinir sérstakir leiðtogar. Ég veit ekki hvort það er endilega gott.
Ég hef frá upphafi talið að JÁ-ið vinni ekki traustan sigur nema Kristrún – stjarna Silfursins og trúverðugasti stjórnmálaleiðtogi samtíðarinnar – beiti sér að fullum þunga á lokaspretti baráttunnar. Kristrún ætlar sér greinilega að rísa undir því hlutverki og hefur nú boðað til fjöldafunda um landið.
Út frá mínu taktíska sjókorti fór NEI-hreyfingin af stað alltof snemma. Hún kann að hafa toppað á vitlausum tíma, og lokahnykkurinn, sem greinilega átti að vera “fundur með tveimur forsetum”, Ólafi Ragnari og Carl Baudenbacher, rann út í sandinn. Myndir af þeim fundi birta líka mjög merkilegt úrtak úr þjóðinni sem bendir til að sigurinn, sem NEI-hreyfingin taldi vísan framanaf, er síður en svo í hendi. Á meðan smýgur “JÁ til að SJÁ” enda eitt besta slagorð seinni tíma, og virkar vel.

Ólafur Ragnar – viljandi eða óviljandi – hefur birst sem nánast óskoraður leiðtogi baráttunnar, með Hannes Hólmstein sem einskonar viðhengi í skriflegri rökræðu.
NEI-hreyfingin hefur hins vegar ólíkt JÁ-urum eignast ótvíræða leiðtoga. Ólafur Ragnar – viljandi eða óviljandi – hefur birst sem nánast óskoraður leiðtogi baráttunnar, með Hannes Hólmstein sem einskonar viðhengi í skriflegri rökræðu. Ólafur Ragnar leiðir mikilvægustu fundina, fer í strategíska umræðuþætti, og gefur pólitískar yfirlýsingar fyrir hönd NEI-aranna. Hann getur í krafti þunga síns sem fyrrverandi forseti lýðveldisins og yfirburðamaður á mörgum sviðum lætt að eitruðum hræðsluáróðri – einsog hjá góðvini mínum Frosta Logasyni – sem enginn tæki mark á úr öðrum munni.
Ólafur Ragnar er semsagt orðinn helsta fallstykki NEI-hreyfingarinnar. Kanski ætlaði hann sér það ekki – en honum hefur alla vega verið ýtt út í það hlutverk. Sigri NEI-ið munu hann og aðrir þakka það Ólafi. Tapi NEI-ið verður hann hinn stóri lúser. Hann hefur einfaldlega sett sig í þá stöðu.
Sjálfum blæðir mér í augum að sjá gamlan samferðamann allt í einu kominn í forystu sveitar auðmanna og hálaunastóðs…
En er það sniðugt eða hollt fyrir NEI-hreyfinguna að hafa í reynd gert Ólaf Ragnar og Hannes Hólmstein að forystutvíeyki baráttunnar? Ég er ekki viss um það. Sjálfum blæðir mér í augum að sjá gamlan samferðamann allt í einu kominn í forystu sveitar auðmanna og hálaunastóðs, þar sem hin virka baráttusveit samanstendur að stórum hluta af gaddfreðnum kjarna Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. En það ræður vitaskuld sérhver sínum næturstað og föruneyti. Ólafi er einsog öllum öðrum frjálst að velja sér bæði vini og skoðanir.
Fundurinn margauglýsti með Carl Baudenbacher átti greinilega í strategíu NEI-hreyfingarinnar að vera upptakturinn að lokahnykknum hjá NEI-hreyfingunni. Af honum spurðust hins vegar engar marktækar fréttir nema góður brandari Ólafs Ragnars um Jón Baldvin, Guðna Ágústsson og Guðlaug Þór sem sátu með honum á fremsta bekk. Það var vissulega tvíræður og eitraður húmor sem hlægja mátti að enda Ólafur umgengist ironíska húmorista á sinni ævi. Að öðru leyti var fundurinn fréttaleysa, autt blað, “non-event”.
Ég er ekki heldur viss um að hinn góði Íslandsvinur Baudenbacher kunni neinum miklar þakkir fyrir að draga hans góða nafn inn í barnalegt plott Hannesar Hólmsteins til að fara á bak við stjórnvöld háskólans til að plata Hátíðasalinn út úr grunlausum rektor. Vitaskuld átti að leyfa Baudenbacher – þó ekki væri nema fyrir “old time sake” – að tala í Hátíðasal Háskólans. Engu máli skiptir þó hann sé á öðru máli en ég eða Silja Bára og hin akademíska sveit um ESB. Baudenbacher á það inni, hvert sem tilefnið er. Hannes klúðraði málinu af dæmalausum – en kunnuglegum – klaufaskap.
Fyrir utan persónulegt einelti Moggans og svartstakka íhaldsins gegn Þorgerði Katrínu hefur verseruðum slagsmálahundi úr pólitík fyrri ára fundist umræðan um ESB vera heldur átakalítil og að mestu leyti innan málefnalegra marka. Á því er þó ein undantekning.
Ólafur Ragnar sökk dýpra en allir aðrir þegar hann gerði Kristrúnu Frostadóttur og Alþingi tortryggileg…
Ólafur Ragnar sökk dýpra en allir aðrir þegar hann gerði Kristrúnu Frostadóttur og Alþingi tortryggileg með því að segja að engin trygging væri fyrir því að þjóðin fengi að kjósa um hugsanlegan samning við ESB sem leiddi af jáyrði í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Þetta var á mörkum þess að segja við þjóðina að Kristrún forsætisráðherra sé að ljúga og sitji með ríkisstjórninni á svikráðum við Íslendinga.
Fyrir þessu var enginn fótur, ekkert tilefni enda hreinn uppspuni gamals áróðursmeistara. Vel má vera að Ólafur Ragnar telji stöðu NEI-hreyfingarinnar þannig að óhjákvæmilegt sé að grípa til örþrifaráða. En svona málflutningur er einfaldlega sorglegur, og engum boðlegur.
Hugsanlega er Ólafi skítsama um orðstír sinn og arfleifð en það vill svo til að öðru máli gegnir um þá sem hann hefur á löngu ferðalagi valið að vinum. Sem þetta er skrifað gengur tungl fyrir sólu og jörð myrkvast.
Það breytir engu um hið fornkveðna að vinur er sá er til vamms segir.