
Vilhjálmur Árnason:
Við erum ekki stimpilpúði. Við eigum að taka mál til vandaðrar meðferðar, fá umsagnir, ræða málin og breyta þeim ef það þarf að breyta þeim og ef það er skynsamlegt og svo afgreiða þau.
„Mig langar að koma hérna upp í liðnum um störf þingsins og ræða störf þingsins. Nú fer að styttast í að þessu þingi eigi að ljúka, eða um miðjan júní, og þá skiptir miklu máli að hér gangi störfin eins vel fyrir sig og hægt er. Þá skiptir náttúrlega mestu máli að vanda til verka og að þau mál sem við afgreiðum hér séu landi og þjóð til heilla og að þau séu vel unnin. Því hefur það valdið mér og mörgum öðrum háttvirtum þingmönnum miklum áhyggjum hvernig málin koma til þingsins. Þau eru illa undirbúin, það vantar gögn, það vantar greiningar og upplýsingar, vantar samráð við þá sem best til þekkja á hverju sviði,“ sagði Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokki.
„Sem sagt, það á eftir að vinna heimavinnuna þegar við fáum málin hingað til þingsins frá framkvæmdarvaldinu eða, eins og ég hef stundum komist að orði miðað við hvað það koma litlar upplýsingar og gögn, frá leynifélagi Kristrúnar Frostadóttur, hæstvirts forsætisráðherra. Undirbúningurinn skiptir máli. Jú, það er þrískipting ríkisvalds og þá skipta vinnubrögðin hér líka máli, að málin komi ekki hingað inn og fari inn í nefndirnar þar sem gestir rétt fá að koma og segja hæ og bæ, því þeim er naumt skammtaður tíminn, þegar þeir fá að koma. Við erum ekki stimpilpúði. Við eigum að taka mál til vandaðrar meðferðar, fá umsagnir, ræða málin og breyta þeim ef það þarf að breyta þeim og ef það er skynsamlegt og svo afgreiða þau. Þannig er þingið byggt upp, þannig er lýðræðið byggt upp og því þurfum við að sinna vel,“ sagði Vilhjálmur.