Grétar Mar Jónsson, fyrrum aflaskipstjóri og nú varaþingmaður fyrir Flokk fólksins tók til máls um fundarstjórn forseta. Grétar sparaði sig hvergi:
„Það er ástæða til að leggja orð í belg Hér er búið að vera að halda, mikilll minnihluti á Alþingi, málum í gíslingu út af veiðigjöldum. Sú umræða sem átt hefur sér stað um sjávarútveg hér síðust daga og vikur er með ólíkindum.
Hérna bullar fólk tóma vitleysu og manni dettur í hug að þetta séu meira og minna þorskar á þurru landi. Vita ekkert hvað þeir eru að segja og leggja til. Ég hvet fólk til að hætta að hlusta á einhliða áróður LÍÚ-klíkunnar og fara eftir þeim eins og hundar í bandi og gelta þegar þeim er sigað.
Það er það sem mér sýnist vera í gangi hjá stjórnarandstöðunni í dag. Það er farið með allskonar rangindi á flestum sviðum varðandi sjávarútvegsmál, varðandi fiskveiðistjórnun, því enginn sjávarútvegur í heiminum er meira ríkisstyrktur heldur en íslenskur sjávarútvegur.“
Síðar steig Njáll Trausti Friðbertsson í pontu. Sármóðgaðru vegna þess sem Grétar Mar hafði sagt. Ekki var annað að heyra en þingforsetinn, Þórunn Sveinbjarnardóttir muni kalla Grétar Mar á teppið.