- Advertisement -

„Loksins tók Þorgerður Katrín af skarið“

Hrafn Magnússon skrifaði:

„Loksins tók Þorgerður Katrín af skarið og fordæmdi þjóðarmorð Ísraela á fólkinu á Gaza. Það hefði hún mátt gera miklu fyrr. Eins sérkennilegt og það er þá eru forráðamenn Eurovision oft út á túni. Þeir heimila Ísrael að keppa en banna Rússum.

Þar með setja þeir þjóðarmorðin á Gaza skör lægra en innrás Rússa í Ukraníu. Hitt er svo annað mál að hvorki Ísrael og Ástralía eru í Evrópu. Það virðist mörgum hulin ráðgáta. Þorgerður Katrín má minnast þess að forveri hennar í starfi utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, sá til þess að Ísland viðurkenndi fyrst ríkja í Evrópu Palestínu.

Aðrar þjóðir í Evrópu fylgdu svo á eftir. Vilji er allt sem þarf.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: