- Advertisement -

Lokun sendiráðsins í Moskvu gagnslaus?

Fyrsta spurningin varðar samskipti við Rússland og getu okkar til að reyna að hafa áhrif á gang mála í Úkraínu þótt ekki væri nema til að mótmæla eins og kostur er hernaði Rússa þar. Telur hæstvirtur ráðherra að það hafi komið að gagni að loka sendiráði Íslands í Moskvu, ólíkt öðrum þjóðum, og ef ekki, telur hann koma til greina að hefja aftur starfsemi þar, eins og ég segi, þótt ekki væri nema til að við gætum betur beitt okkur gegn hernaðinum?“

Þannig spurði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson spurði og Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra svaraði svona:

„Hér er spurt sérstaklega að því þegar horft er til átakanna í Úkraínu, hvort það hafi að mínu mati komið að gagni að loka sendiráðinu. Ég get ekki sagt að það hafi eitthvað sérstaklega komið að gagni. Það var hins vegar ákvörðun sem átti sér skýrar forsendur, m.a. þær að starfsemin var í algeru lágmarki og samskiptin nær engin á þeim tíma og það var komið að sendiherraskiptum. Á þessum tímapunkti er ekki til skoðunar að opna aftur en það fylgdi yfirlýsingunni á sínum tíma að það kæmi vel til greina þegar ástandið hefði breyst að nýju. Við erum ekki að slíta stjórnmálasambandi við Rússland þó að við höfum ákveðið að leggja niður starfsemi sendiráðsins.“

-sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: