Úr bókunum frá síðasta fundi borgarráðs:
„Meirihlutinn tók við afar slæmri fjárhagsstöðu og hefur þegar byrjað á brýnum aðgerðum og hagræðingum til þess að mæta milljarða hallarekstri hjá Reykjavíkurborg. Ljóst er að mikið verk er framundan við að ná markmiðum um sjálfbær fjármál borgarinnar og góða þjónustu við borgarbúa. Úthlutun ramma til sviðanna fyrir næsta starfsár litast bæði af bágri stöðu fjármála borgarinnar og ástandi á markaði og í heiminum, átökum og krefjandi vaxtaumhverfi. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur mikla áherslu á að Reykjavíkurborg fari vel með almannafé og tryggi að fjármunir borgarbúa nýtist sem best til að standa undir öflugri þjónustu og sjálfbærum rekstri,“ segir í bókun nýja meirihlutans í Reykjavík.
Fulltrúum Samfylkingarinnar stendur ekki á sama:
„Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lýsa yfir áhyggjum af því að rammaúthlutun muni fela í sér niðurskurð á þjónustu við borgarbúa en ítrekað kemur fram að skoða þurfi breytingar á mönnun og þjónustustigi m.a. í skólum, leikskólum og velferðarþjónustu. Jafnframt er mikilvægt er að tryggja aðkomu fagráða að forgangsröðun sviða en tímaramminn sem er gefinn tekur ekki tillit til fundadagatala þeirra. Þá er erfitt að sjá hvernig 4% hækkun á almennum gjaldskrám samræmist því að borgin geri sitt til að halda verðbólgu niðri.“
Meirihlutinn reyndi að róa Samfylkingarfólkið:
„Meirihlutinn ítrekar að staðinn verður vörður um grunnþjónustu við borgarbúa. Meirihlutinn leggur sérstaka áherslu á að fjármunum verði beint að þeim verkefnum sem skipta borgarbúa mestu máli, þar á meðal fjölgun dagvistunarplássa, öflugri þjónustu fyrir eldri borgara, bættri þjónustu við börn og fjölskyldur, aukinni skilvirkni í skipulags- og byggingarmálum og markvissri uppbyggingu og viðhaldi innviða. Jafnframt verður unnið að einfaldara og skilvirkara stjórnkerfi þar sem árangur, ábyrgð og kostnaðareftirlit eru höfð að leiðarljósi. Fagráð munu taka þátt í fjárhagsáætlun sinna sviða og verða boðaðir aukafundir eftir því sem við á.“