„Menn eru oft á hálfgerðri sjálfstýringu í vitleysunni.“
Karl Gauti Hjlatason.
Alþingi: „Það hefði t.d. verið ágætt fyrir örfáum árum síðan, kannski átta árum síðan, ef við hefðum getað sett upp einhvers konar líkan af því hvað myndi gerast við tilkomu stækkunar Landspítala á umferðareyjunni hérna fyrir ofan. Það hefði verið ágætt að sjá það því að allir sjá það, herra forseti, í dag, það er svo augljóst öllum og ég held að það séu fáir sem mótmæla því, hvers lags mistök var þarna um að ræða. Menn eru strax farnir að tala um það að það þurfi að byggja spítala á hentugri stað. Samt er ekki búið að klára þennan,“ sagði Karl Gauti Hjaltason Miðflokki á Alþingi.
„Kostnaðartölur sprengja utan af sér allar umbúðir. Þetta var fyrirséð, herra forseti, en á það var ekkert hlustað. Menn eru oft á hálfgerðri sjálfstýringu í vitleysunni, hver apar upp eftir öðrum og menn trúa á einhvers konar fræðinga, einhver líkön, einhverja tölvuuppsetningu á málum og segja: Já, þetta er rosalega flott og setja af stað hópa og nefndir og ráð. Ég held að það séu þegar einhverjir menn eða konur að vinna við að undirbúa þessa borgarlínu, einhver skrifstofa, þannig að þetta er komið á fleygiferð. Því miður, herra forseti, virðist þetta vera búið að hleypa þessu af stokkunum því það er farið að undirbúa brúna yfir Fossvog og strax þar sjáum við að áætlanir gera ráð fyrir að brúin muni kosta hátt í 40% meira heldur en gert var ráð fyrir. En menn halda bara áfram. Menn bera enga ábyrgð.“