„Ég biðla því til þingheims að sameinast um að byggja undir traust á réttarkerfinu okkar með því að álykta á þessu þingi að skipuð verði rannsóknarnefnd Alþingis vegna svokallaðra hrunmála.“
Nanna Margrét Gunnlausdóttir.
Alþingi:„Við getum verið ósammála um flest en ég tel að við getum öll verið sammála um að vilja að réttarkerfið virki og að um það ríki traust, enda er réttaröryggi hornsteinn lýðræðis. Nú stöndum við sem þjóðfélag frammi fyrir því að pottur kann víða að hafa verið brotinn þegar kom að svokölluðum hrunmálum. Við heyrum sláandi dæmi af borgurum sem eru búnir að eyða stórum hluta af ævi sinni í að verjast kerfi sem virtist á köflum búið að dæma menn seka áður en rannsókn hófst. Menn sátu saklausir í fangelsi, símar voru hleraðir umfram heimildir, trúnaðargögn láku út frá embætti sérstaks saksóknara, mikilvægar upplýsingar skiluðu sér ekki milli aðila og fleira viðlíka. Menn voru dæmdir í fangelsi og í of mörgum tilfellum hefur nú komið í ljós að engin lög voru brotin en það kom í ljós 10, 15 eða nú 17 árum síðar, eftir að æra og lifibrauð fólks hafa fengið að fjúka og mögulega bestu ár ævinnar undirlögð í að berjast við kerfi sem hafði mögulega hagað rannsókn með óeðlilegum hætti allan tímann. Ekkert heyrist frá þessu sama kerfi núna,“ sagði Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir á Alþingi í dag.
„Í ljósi þeirra upplýsinga sem hafa nú þegar komið fram legg ég til að Alþingi setji á fót rannsóknarnefnd Alþingis þar sem kannað verði hvort starfshættir embættis sérstaks saksóknara hafi samrýmst því sjálfstæði sem handhafar réttarvörslu eiga og verða að viðhafa til að geta á hlutlægan hátt leitt hið sanna í ljós. Ég tel það nauðsynlegt fyrir þá aðila sem voru til rannsóknar og mikilvægt fyrir embætti sérstaks saksóknara til að geta öðlast traust borgaranna að nýju. Ég biðla því til þingheims að sameinast um að byggja undir traust á réttarkerfinu okkar með því að álykta á þessu þingi að skipuð verði rannsóknarnefnd Alþingis vegna svokallaðra hrunmála,“ sagði Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir Miðflokki.