- Advertisement -

Miðflokkurinn vill leggja niður bæði mannréttindaráð og mannréttindaskrifstofu

Regína Ástvaldsdóttir skrifaði:

„Þrátt fyrir að hafa starfað í ráðhúsinu um margra ára skeið var það alveg sérstök tilfinning að vera í hlutverki borgarfulltrúa í dag á síðasta fundi borgarstjórnar fyrir sumarfrí og flytja jómfrúarræðuna.

Hún fjallaði um mikilvægi mannréttindamála í tilefni af tillögu Miðflokksins um að leggja niður mannréttindaráð og mannréttindaskrifstofu.

Við erum því algjörlega mótfallin og teljum mikilvægi þess að standa vörð um mannréttindi minnihlutahópa sjaldan hafa verið brýnni – á tímum þar sem gelt er í áttina að samkynhneigðu fólki, atlaga er gerð að transfólki með afneitun á tilvist þeirra, kynþáttahyggja hefur aukist og lengi mætti áfram telja hvað varðar hópa í viðkvæmri stöðu. Við kölluðum líka eftir skýrleika frá Miðflokknum hvað varðar þá hagræðingu sem niðurlagning skrifstofunnar og dreifing verkefna út um allt borgarkerfið á að hafa í för með sér. Fljótt á litið er sú hagræðing mjög takmörkuð.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég notaði líka tækfærið þar sem ég á ekki von á því að vera oft í borgarstjórn á kjörtímabilinu að þakka Önnu Kristinsdóttur og öðru starfsfólki mannréttindaskrifstofu fyrir frábær störf þau 18 ár sem skrifstofan hefur verið starfrækt. Mörg verkefnanna, eins og Saman gegn ofbeldi hafa vakið mikla athygli og hafa bjargað mörgum þolendum úr óbærilegri stöðu.

Þá kom ég einnig upp undir tillögu borgarstjóra um að setja á laggirnar stýrihóp sem vinnur að hagræðingartillögum og breytingum en það er mjög jákvætt og fullkomlega eðlilegt að nýr meirihluti vinni slíka úttekt. Það sem ég gagnrýni hinsvegar er meðferð talna – áður en úttekt hefur farið fram – þar sem verið er að nota gögn sem eru ósamanburðarhæf og fullyrða að rekstur borgarinnar sé óhagstæðari en hjá öðrum sveitarfélögum. Það þarf að kafa ofan í reksturinn og koma með miklu betri greiningar til að geta fullyrt slíkt.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: