„Það er flókið og margslungið verkefni sem við verðum að axla ábyrgð á í sameiningu.“
Þorgerður Katrín utanríkisráðherra.
Alþingi: „Ísland er herlaust land en Ísland er ekki varnarlaust land. Við tryggjum öryggi okkar gagnvart hernaðarlegri hættu með virkri samvinnu við önnur ríki og innan alþjóðastofnana samhliða uppbyggingu á innlendum borgaralegum viðbúnaði og getu. Þetta fer saman,“ sagði Þorgerður Katrín utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar á Alþingi.
„Í stefnunni er áréttað að meginstoðir varna Íslands séu annars vegar aðildin að NATO, Atlantshafsbandalaginu, og hins vegar varnarsamningurinn dýrmæti frá 1951 við Bandaríkin. Svæðisbundið og tvíhliða samstarf við nágrannaríki og lykilbandamenn innan Atlantshafsbandalagsins styður við og styrkir þessar stoðir og það hefur raunar beinlínis verið kallað eftir því innan NATO, ekki síst af hálfu Bandaríkjamanna. Ég vil því undirstrika að það er engin mótsögn í tvíhliða samstarfi við einstök ríki og við vorum bara um daginn að skrifa undir samstarfssamninga við Finnland annars vegar og Þýskaland hins vegar, svo dæmi séu nefnd, og það er ekki mótsögn í því að gera slíka samninga og virkri þátttöku í svæðisbundnu samstarfi annars vegar og þátttöku í NATO og varnarsamningnum við Bandaríkin hins vegar. Þvert á móti vinnur þetta allt að sama marki og styrkir hvert annað og styrkir um leið öryggi okkar Íslendinga og varnir,“ sagði utanríkisráðherra.
„Það er mikilvægara en nokkru sinni að hlúa markvisst að tengslum Norður-Ameríku og Evrópu og mikilvægara en nokkru sinni fyrr að mínu mati, alla vega síðustu áratugina. Atlantshafstengslin og samstarf sem byggist á varðstöðu um sameiginleg gildi hafa verið grundvöllur friðar, stöðugleika og hagsældar í hartnær átta áratugi, tvímælalaust. Mikilvægi tvíhliða og svæðisbundins varnarsamstarfs fer einnig stöðugt vaxandi, eins og við þekkjum og vitum, og þá sérstaklega varnarsamstarf Norðurlandanna, NORDEFCO. Ég fer einmitt í næstu viku til Helsinki á fund kollega minna þar. Samstarf sameiginlegu viðbragðssveitarinnar, JEF, er gríðarlega mikilvægt og samstarf við helstu lykilbandalög Íslands, ekki síst á norðurslóðum, er dýrmætt að rækta. Styrkur svæðisbundins varnarsamstarfs, bæði í JEF og NORDEFCO, er að þátttökuríkin deila svæðisbundnum öryggisáskorunum, þekkja vel til aðstæðna og þekkja vel til getu hvers annars og geta þannig brugðist hratt við spennuástandi og ýmsum öðrum áskorunum sem við kunnum að standa frammi fyrir á okkar svæði.
Þar eru mikil tækifæri til að þróa sameiginlega getu okkar allra og viðbragð…
Norræna samstarfið á sviði varnarmála hefur aldrei verið eins náið og nú þegar öll Norðurlöndin eiga aðild að Atlantshafsbandalaginu. Þar eru mikil tækifæri til að þróa sameiginlega getu okkar allra og viðbragð sem um leið styrkir varnir og öryggi ríkjanna, þar með talið Íslands, og um leið sameiginlegar varnir Atlantshafsbandalagsins. Það er aukinn þungi að færast í umræðu á öllum fundum innan NATO um það að beina sjónum sínum líka að Norður-Atlantshafinu og norðurslóðum af því að það er um raunverulegar ógnir að ræða og við þurfum að standa okkur hvað það varðar,“ sagði Þorgerður Katrín.
Hún endaði ræðu sína með þessum orðum:
„Eins og ég gat um, virðulegi forseti, í upphafi þá fer þessi stefnumótun fram á tímum óvissu í alþjóðamálum þar sem breytingar eru hraðar og oft ófyrirséðar. Eins og fram kemur í mikilvægri skýrslu samráðshópsins verður Ísland, líkt og önnur ríki, að grípa til aðgerða til að standa vörð um öryggi þjóðarinnar og sameiginlegar varnir aðildarríkja NATO. Það er flókið og margslungið verkefni sem við verðum að axla ábyrgð á í sameiningu.“