- Advertisement -

Segir níðst á Sveinbjörgu Birnu

Stjórnmál Svanur Guðmundsson, kosningastjóri Framsóknar í Reykjavík, er mjög ósáttur vegna teikningar í Fréttablaðinu í dag og vill að ritstjórn blaðsins biðjist afsökunar á myndbirtingunni.

Svanur segir í yfirlýsingu: „Í þeirri mynd eru allir frambjóðendur teiknaðir nokkuð glaðir en Sveinbjörg er sett í Ku Klux Klan búning. Með því er einn oddvitinn tekinn út og níddur á mjög óforskammaðan hátt og það á sjálfan kjördag. Þetta er einelti og dónaskapur í sinni grófustu mynd.
Ku Klux Klan eru alþekkt samtök öfgamanna sem tóku blökkumenn af lífi með hengingum, barsmíðum og brenndu þá. Sveinbjörg er með þessari myndbirtingu sett á bekk með þessum óhugnanlegu morðingjum.

Við sem höfum unnið að þessari kosningabaráttu með Sveinbjörgu þekkjum hana og hennar kosti og virðum hana mikils fyrir hvað hún hefur verið laus við að svara öfgum og hatursfullum áróðri sem á hana hafa dunið og látið vera að falla í sömu gryfju.

Með þessari myndbirtingu hefur ritstjórn Fréttablaðsins opinberað hatur sitt á Sveinbjörgu. Eitt er hvað fréttaflutningur hefur verið beinlínis rangur hjá þessum miðli og hversu hlutdrægur hann hefur verið gegn Framsókn og flugvallarvinum þá ganga þeir of langt með þessari myndbirtingu og ráðast á hana persónulega með því að setja hana á bekk með Ku Klux Klan.

Menn vilja að menn haldi sig við málefnin og fari ekki í manninn en með þessari mynd er verið að taka hana af lífi á færi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: