Alþingi:
Sigríður Á. Andersen Miðflokki:
„Orðið orkuskipti bar fyrst á góma í þingsal árið 2010, hygg ég. Síðan hafa liðið mörg ár og tugir, ef ekki hundruð, milljarða hafa farið til verkefna sem hafa verið skilgreind sem verkefni á sviði orkuskipta. Niðurstaðan af öllu þessu bixi er enginn árangur. Notkun endurnýjaðrar orku sem hlutfall af innfluttum orkugjöfum er enn í dag sama hlutfall og var 2010.
Hvað er hagkvæmt
fyrir Íslendinga?
Ástæðan er auðvitað sú að vegna þess að Íslendingar eru heimsmeistarar í notkun endurnýjanlegrar orku höfum við frá árinu 2010 og löngu fyrir þann tíma verið með 80% eða 90% endurnýjanlegrar orku af allri okkar orkunotkun. Það er í þessu ljósi sem það er svo grátlegt að sjá þessum fjármunum eytt í hin og þessi verkefni sem hefur valdið því að hinir og þessir, sumir, ekki allir, hafa getað mokað úr ríkissjóði fé til einhverra verkefna sem hafa síðan engum árangri skilað og var fyrirséð að myndi ekki skila nokkrum árangri, vegna þess að Íslendingar eru heimsmeistarar í þessu.“
„Þess vegna langar mig að spyrja hæstvirtan ráðherra hvort hann sé ekki sammála mér í því að við eigum að hætta að líta til þessara loftslagsmarkmiða endalaust. Við eigum að líta frekar til þeirra hagsmuna sem Íslendingar hafa almennt og hvað það er hagkvæmt. Hvað er hagkvæmt fyrir Íslendinga?“
Jóhann Pál Jóhannsson umhverfis-. orku- og loftlagsráðherra:
„Ég held að það sé mikilvægt að rugla ekki saman orkunotkun og orkuframleiðslu. Við höfum verið að taka okkur á á síðustu árum þegar kemur að orkunotkun, t.d. í samgöngum, og ég held að það sé gríðarlegur ávinningur og ábati fólginn í því sem við getum kallað styrkara orkufullveldi, að við þurfum síður að reiða okkur á innflutt eldsneyti með öllum þeim sveiflum í heimsmarkaðsverði sem því fylgir. Þannig að háttvirtur þingmaður hlýtur að vera sammála mér í því að orkuskipti skipta sannarlega máli að þessu leytinu til, bæði fyrir fyrirtæki og heimili. Það er til mikils að vinna þarna.“