Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður skrifar grein í Moggann. Hér á eftir eru valdir kaflar úr greininni. Byrjum á byrjuninni:
„Ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu landsmönnum lægri verðbólgu og lægri vöxtum. Þetta var ekki aukaatriði í kosningabaráttunni. Þvert á móti snerist stór hluti hennar um þetta verkefni og ríkisstjórnin var mynduð með efnahagslegan stöðugleika að einu helsta markmiði.“
„Nú er komið fram í ágúst 2026. Verðbólgan er enn langt yfir 2,5% markmiði Seðlabankans og meginvextir eru 7,75%.
Það er því eðlilegt að spyrja: Af hverju vill ríkisstjórnin ekki lækka vexti?
Eftir að hafa gefist upp…
Ríkisstjórnin ákveður auðvitað ekki stýrivexti. Það gerir sjálfstæð peningastefnunefnd Seðlabankans. En ríkisstjórnin ræður yfir mikilvægasta stjórntæki stjórnmálanna til að styðja við lægri verðbólgu og skapa svigrúm til vaxtalækkana: opinberum fjármálum.“
Síðar segir í grein Guðlaugs:
„Eftir að hafa gefist upp á því að nota ríkisfjármálin með nægilega afgerandi hætti til að ná niður verðbólgu og skapa svigrúm til lægri vaxta er nýr boðskapur kominn fram.
Nú er almenningi sagt að lægri vextir komi með aðild að Evrópusambandinu og síðar upptöku evru.
Það er sjálfsagt að ræða kosti og galla ólíkra gjaldmiðlaleiða. Upptaka annars gjaldmiðils gæti dregið úr gengisáhættu og haft áhrif á vaxtakjör til lengri tíma. Hún hefur líka í för með sér veruleg álitaefni og afsal sjálfstæðrar peningastefnu.
En evran er engin afsökun fyrir aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar núna.
Evran fylgir ekki sjálfkrafa ESB-aðild. Áður en ríki getur tekið hana upp þarf það meðal annars að uppfylla skilyrði um verðstöðugleika, opinber fjármál, langtímavexti og gengisstöðugleika.
Með öðrum orðum: Til að geta tekið upp evru þarf Ísland einmitt að ná tökum á þeim vandamálum sem ríkisstjórnin á að leysa núna. Sameiginlegur gjaldmiðill afnemur ekki hallarekstur, skuldasöfnun eða óhóflegan útgjaldavöxt.
Vegferðin að lægri verðbólgu og vöxtum er sú sama, óháð því hvort stefnt er að upptöku evru eður ei, ríkisfjármálin þurfa að vera í lagi.“
Greinin er öll í Mogga dagsins í dag.