- Advertisement -

Nýi meirihlutinn í borginni lætur vinna aftur það sem þegar hefur verið unnið

RVK: Á síðasta fundi íþrótta- og útilífsráðs (áður Íþrótta og tómstundaráð) bókaði meirihlutinn þetta:

„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar í íþrótta- og útilífsráði leggja til að fela sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs að kortleggja aðstöðumál og fjárframlög til íþróttafélaga. Er óskað eftir því að sviðsstjóri vinni að umræddri kortlagningu í samvinnu við starfsmenn menningar- og íþróttasviðs, Íþróttabandalags Reykjavíkur, eignasjóðs Reykjavíkurborgar og aðra þá aðila sem búa yfir nauðsynlegum upplýsingum varðandi aðstöðumál og fjárframlög til íþróttafélaga sem starfa innan Reykjavíkurborgar. Sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs verði falið að leggja fram skýrslu með helstu niðurstöðum eigi síðar en 25. ágúst nk.“

Stefán Pálsson á sæti í ráðinu og bókaði:

„Fulltrúi Vinstrisins í íþrótta- og útivistarráði bendir á að mikil vinna hafi farið fram á fyrra kjörtímabili við endurskoðun á forgangsröðun uppbyggingar íþróttamannvirkja í Reykjavík. Skynsamlegra hefði verið að ljúka einfaldlega vinnu þess starfshóps með nýjum kjörnum fulltrúum í stað þess að fara beina leið á byrjunarreit með því að fela sviðsstjóra að ráðast í kortlagningu verkefnisins frá grunni.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

En, nei takk. 


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: