- Advertisement -

Rándýr ferð á kostnað Alþingis

„Ég spyr og vil bara fá upplýsingar um það hvort við eigum að fara að taka það saman hvort allar þessar utanlandsferðir og kostnaðurinn í kringum þær séu nauðsynlegar.“

„Ég var að koma úr minni fyrstu utanlandsferð á vegum þingsins, af velferðarnefndarfundi Norðurlandaráðs í Nuuk í Grænlandi. Ég spyr mig eftir þessa ferð hverju hún skilar og í hvaða tilgangi hún hafi verið farin,“ sagði Guðmundur Ingi Kristinsson á Alþingi í dag.

„Ég verð að gera athugasemd við það að ég gisti á dýrasta hóteli sem ég hef nokkurn tímann gist á á ævinni. Það er meira en tvöfalt dýrara en nokkurt lúxushótel sem ég hef komist inn á.“

Og þingmaðurinn er hugsi:

„Ég spyr mig hvers vegna í ósköpunum var verið að senda tíu manns, sjö þingmenn og aðstoðarfólk, á þessa ráðstefnu sem var eingöngu í þeim tilgangi að samþykkja einhverjar áður gerðar ályktanir eða reyna að gera einhverjar orðalagsbreytingar.“

Á sama tíma er hver fréttatíminn af öðrum þar sem börn koma fram og fá ekki þjónustu vegna þess að laga þarf í þeim góminn, það þarf að laga í þeim tennurnar.

„Er þetta gegnumgangandi á þinginu?“

Áfram með ræðu Guðmundar Inga:

„Ég spyr: Til hvers í ósköpunum erum við að þessu? Ég spyr líka, ef ég er að borga þarna meira en helmingi dýrara hótel en þyrfti að vera og við erum að borga helmingi meira fyrir Þingvelli og hátíðina þar en þyrfti: Er þetta gegnumgangandi á þinginu? Þurfum við ekki að fara að endurskoða hlutina?

Á sama tíma er hver fréttatíminn af öðrum þar sem börn koma fram og fá ekki þjónustu vegna þess að laga þarf í þeim góminn, það þarf að laga í þeim tennurnar. Á sama tíma erum við að setja inn í fjárlög hungurlús, 1% hækkun á persónuafslætti aukalega, 500 kall. Það sýnir sig að 1% lækkun á 37% þrepaskatti hefði skilað 14 milljörðum til að nota í persónuafsláttinn og það hefði skilað þeim sem lægst eru settir 15.000 kr. á mánuði en ekki 500 kr.“

Eru ferðirnar nauðsynlegar?

„Ég spyr og vil bara fá upplýsingar um það hvort við eigum að fara að taka það saman hvort allar þessar utanlandsferðir og kostnaðurinn í kringum þær séu nauðsynlegar. Við eigum að kafa ofan í þetta. Að lokum vil ég segja: Þetta var rándýr ferð en það sem er undarlegast við hana og verður sennilega mest í minningunni haft er að hún var í boði Alþingis og það eina sem stendur sennilega upp úr er rándýr hálsbólga og kvef,“ þannig endaði Guðmundur Ingi Kristinsson ræðu sína.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: