„En kannski er vandinn sá að okkur skortir skýrari heildarmynd. Tökum sem dæmi að nýlega voru kynnt áform um tvöföldun auðlindagjalds. En hver verða raunveruleg áhrif slíkra breytinga á atvinnugreinina og á fjárfestingu í sjávarútvegi og nýsköpun í sjávarútvegi? Áhrif aukinnar gjaldtöku eru aðeins metin lauslega með tölulegri leikfimi. Ekki er unnin heildargreining um áhrifin á sveitarfélögin, áhrifin á greinina og áhrifin á störfin,“ sagði þingflokksformaður Framsóknar, Ingibjörg Isaksen, í umræðu um fjármálastefnu áranna 2026 til 2030.
Í lok ræðu sinnar sagði Ingibjörg:
„Að lokum, virðulegi forseti, vil ég ítreka að það er kominn tími á að við tökum fjármálastefnu alvarlega sem það stjórntæki sem henni er ætlað að vera. Hún á ekki að vera samansafn væntinga heldur verkfæri til að móta framtíðina, tryggja sjálfbærni og efla traust borgaranna á því hvernig farið er með sameiginlegt fé og einnig vera leiðbeinandi fyrir fyrirtæki í landinu sem eru að gera áætlanir fram í tímann varðandi fjárfestingar og fleira.“