„Ég hefði áhuga á því í ljósi þessara tíðinda, t.d. af BBC, að vita hvort hæstvirtur ráðherra viti til þess að það hafi farið fram nokkur úttekt á síðari árum á hlutdrægni Ríkisútvarpsins…“
Snorri Másson varaformaður Miðflokksins.
Alþingi: Snorri Másson byrjaði ræðu á að fjalla um vanda BBC eftir að þar birtist óörugg „frétt“ um Donald Trump. Snorri snéri fréttinni yfir á RÚV.
„Ég vildi aðeins ræða þetta við hæstvirtan menningarmálaráðherra sem ég þykist nú vita að mun eftir sem áður gaslýsa okkur um þessa pólitísku slagsíðu Ríkisútvarpsins. En maður er með augu, maður er með eyru og maður veit að þarna eru margir inni í rammpólitískri baráttu. Ég hef nú nefnt það hérna í þinginu áður að sumir segja það fullum fetum, lýsa því að hlutverk Ríkisútvarpsins sé að stemma stigu við ákveðnum pólitískum stefnum, m.a. þjóðernisíhaldi, lýsa því fullum fetum. Hæstvirtur ráðherra hefur nú neitað að bregðast við því en förum ekki út í það hér. Ljóst er að Ríkisútvarpið tekur einfaldlega einhliða afstöðu í mörgum stórum málum, einmitt transmálum, loftslagsmálum, útlendingamálum, erlendum stjórnmálum, hvað þá bandarískum stjórnmálum. Þetta sjá allir sem vilja sjá og eru farnir að telja margir að RÚV sé hreinlega að vinna gegn sinni heimssýn þrátt fyrir að menn séu neyddir til að greiða fyrir þetta og ríkisstjórnin neiti að breyta því og leyfa mönnum að ráðstafa þessu frjálst,“ sagði varaformaður Miðflokksins.
„Ég hefði áhuga á því í ljósi þessara tíðinda, t.d. af BBC, að vita hvort hæstvirtur ráðherra viti til þess að það hafi farið fram nokkur úttekt á síðari árum á hlutdrægni Ríkisútvarpsins í stórum, t.d. umdeildum samfélagsmálum eða einfaldlega pólitík almennt. Hvort slík úttekt hafi farið fram á einhverjum tímapunkti. Og þá hvort hæstvirtur ráðherra væri tilbúinn til að styðja við slíka úttekt og standa því að hún fari fram,“ sagði Snorri.
Ég deili því ekki áhyggjum háttvits þingmanns.
Logi Einarsson steig í pontu og sagði:
„Besta athugun á hlutleysi fjölmiðla er traust á þeim. Nú er það þannig að BBC virðist hafa gert alveg hroðaleg mistök og það hafði afleiðingar; tveir mjög virtir blaðamenn voru látnir taka pokann sinn. Samt nýtur BBC mikils trausts og er kannski sá fjölmiðill í heiminum sem nýtur mests trausts, þannig að þau eru viljug til þess að taka á þessu. Að sama skapi hefur komið fram ítrekað, í könnun eftir könnun, að íslenska Ríkisútvarpið, RÚV, nýtur gríðarlega mikils trausts og ég deili ekki áhyggjum háttvirts þingmanns af því að Ríkisútvarpið gangi einhliða fram og stundi einhvers konar innrætingu eða haldi hlutunum bjöguðum. Það er ekki mín tilfinning. Það er hins vegar sjálfsögð krafa að Ríkisútvarpið, sem fær mikið fé á fjárlögum og gegnir miklu og mikilvægu hlutverki sem almannaheillaútvarp, sé undir stöðugri skoðun og gagnrýni. Ég hef nú ekki séð annað en að Ríkisútvarpið sé kannski meðal þeirra opinberu stofnana sem oftast fá gagnrýni héðan úr þessum þingsal og kannski hefur háttvirtur þingmaður ekki haldið margar ræður án þess að víkja að því. Ég deili því ekki áhyggjum háttvits þingmanns af hlutleysi Ríkisútvarpsins,“ sagði Logi.
…að hann vilji ekki…
Snorri átti sína seinni ræðu eftir:
„Ég óttast að það sé þannig að þegar hæstvirtur ráðherra og aðrir þingmenn stjórnarinnar lýsa því að þeir deili ekki þessum áhyggjum — sem eru ekki áhyggjur heldur staðreynd máls og upplifun mjög margra í samfélaginu, ekki aðeins stjórnmálamanna heldur fjölda þeirra sem hafa ekki endilega þá heimssýn sem rekin er á Ríkisútvarpinu. Þar að auki má bara nefna að hæstvirtur ráðherra hlýtur þá að vera eins og einhver fiskur í vatni ef hann neitar að horfast í augu við þetta. Maður þarf ekki að horfa lengi á dagskrá Ríkisútvarpsins til þess að átta sig á því hér um bil hvar sjónarmiðin liggja í umfjöllun þar. Látum liggja á milli hluta hvernig starfsemi fréttastofunnar er, þar er þetta kannski skárra, en í öllu öðru menningarefni, dagskrárefni eða öðru — kannski finnst mönnum það bara óskaplega eðlilegt og þá er fínt að hæstvirtur ráðherra staðfesti að hann vilji ekki að það fari fram úttekt á heildarstarfsemi Ríkisútvarpsins þar sem kannað er heiðarlega af óháðum aðilum hvernig liggur í þessu máli, að hæstvirts ráðherra þóknist ekki slík úttekt.“
…nenni ég ekki…
Logi átti lokaorðin:
„Ég minni á það sem ég sagði áðan; ég held að besti dómur sem fjölmiðill getur fengið er að hann njóti víðtæks og góðs trausts. Það útilokar það þó ekki að ef mistök eru gerð er sjálfsagt að kanna það í staðinn fyrir að fara að gera einhverja allsherjarúttekt á Ríkisútvarpinu. Ég sé ekki tilefni til þess. Háttvirtur þingmaður getur hins vegar komið með tillögu um það hér inni.
Hins vegar nenni ég ekki að fara að hlaupa til vegna þess að háttvirtur þingmaður kemur ítrekað fram með hálfkveðnar vísur, hálfsannleik og dylgjur. Hann verður einfaldlega að nefna einhver dæmi, einhver skýr dæmi um það sem hann er að tala um ekki láta hlutina alltaf liggja í loftinu.“