- Advertisement -

Sigurður Ingi ótrúr eigin uppeldi

„Ég er alinn upp við það og það er mín lífsskoðun að allir séu jafnir. Þess vegna hef ég tamið mér að koma jafnt fram við alla. En mér verður á eins og öðrum. Það þykir mér miður. Í kvöldverðarboði Framsóknar fyrir fulltrúa á Búnaðarþingi síðastliðið fimmtudagskvöld, lét ég óviðurkvæmileg orð falla í garð framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Á þeim orðum biðst ég innilegrar afsökunar. Í lífinu er maður alltaf að læra á sjálfan sig. Sárt er þó að sá lærdómur bitni á tilfinningum annarra,“ skrifar Sigurður Ingi Jóhannsson á Facebook.

Nokkrir fjölmiðlar hafa reynt að ná til ráðherrans og formanns Framsóknar. Hann gefur ekki færi á sér. Minnir ögn á Klaustursmálið.

Vigdís Häsler:
Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráðherrann viðhafði í minn garð. Duldir fordómar eru gríðarlegt samfélagsmein og grassera á öllum stigum samfélagsins.

Vigdís Häsler hefur sent frá sér yfirlýsingu: „Aldrei hélt ég að ég þyrfti að setjast niður og skrifa svona yfirlýsingu. Ég hef aldrei látið húðlit, kynþátt, kynferði eða annað skilgreina mig. Ég hef alltaf talið að verk mín og gjörðir töluðu fyrir sig sjálf, en núna tel ég mig knúna til að tjá mig um það sem gerðist. Á fimmtudaginn sl. sótti starfsfólk Bændasamtakanna, þar með talin ég flokkaboð til stjórnmálaflokka sem haldin eru í tengslum við Búnaðarþing og löng hefð hefur verið fyrir. Starfsfólk Bændasamtakanna óskaði eftir því að innviðaráðherra og fleiri væru með í myndatöku sem ég kom síðar að. Þar voru afar særandi ummæli látin falla og heyrði bæði ég það sem og starfsfólk samtakanna. Aðstoðarmaður ráðherrans var ekki við hlið hans þegar ummælin voru látin falla, eins og hún hefur haldið fram en myndir úr þessari myndatöku sýna það án alls vafa. Það er særandi þegar reynt er að gera lítið úr upplifun minni og þegar beinlínis rangar skýringar eru notaðar við það. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráðherrann viðhafði í minn garð. Duldir fordómar eru gríðarlegt samfélagsmein og grassera á öllum stigum samfélagsins. Þeir smætta verk einstaklinga og gjörðir niður í lit eða kyn. Ég mun ekki tjá mig um þetta frekar heldur kýs núna að horfa fram á veginn að vinna úr þeim góðu niðurstöðum sem fram komu á Búnaðarþingi.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: