- Advertisement -

Sjálfsmorðsleiðangur Sjálfstæðisflokksins?

Á fjölmennum fundi Félags Sjálfstæðismanna um fullveldismál í gær var einhugur um það að forða verði Sjálfstæðisflokknum frá skipbroti.

Arnar Þór Jónsson, sem kjörinn var sem fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í kjördæmi Bjarna formanns, hefur sýnilega misst trú á flokkinn. Hann skrifaði:

„Í sögulegu tilliti hefur Sjálfstæðisflokkurinn sótt kjarnafylgi sitt til þeirra sem umhugað er um það að hér búi frjáls þjóð í frjálsu landi. Ef þingflokkur XD hyggst halda áfram stuðningi við frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35 væri hann með því að hrekja frá sér sína dyggustu stuðningsmenn. Það hefði þær afleiðingar að flokkurinn myndi endanlega missa sérstöðu sína sem kjölfestuflokkur íslenskra stjórnmála og yrði einn af mörgum smáflokkum.

Með því að taka upp stefnumál Samfylkingar / Viðreisnar / annarra vinstri flokka um ólýðræðislega lagasetningu, miðstýrt og fjarlægt vald, aukin áhrif erlendra eftirlitsstofnana, vald án ábyrgðar o.s.frv. þá eykur Sjálfstæðisflokkurinn ekki fylgi sitt heldur minnkar það. Enginn þarf að ímynda sér að vinstri menn muni kjósa Sjálfstæðisflokkinn, sama hversu „woke“ þingflokkur hans þykist ætla að vera eða hversu langt til vinstri flokkurinn vill seilast sem ,,breiðfylking“. 

Hefur Sjálstæðisflokkurinn efni á að slíkur klofningur verði?

Í stjórnmálum velja kjósendur flokka út frá grundvallarstefnu þeirra. Þegar þingmenn missa sjónar á grunnviðmiðum sínum þurfa þeir hjálp til að rata aftur heim.

Á fjölmennum fundi Félags Sjálfstæðismanna um fullveldismál í gær var einhugur um það að forða verði Sjálfstæðisflokknum frá skipbroti. Fundarmenn voru sammála um að koma verði flokknum út úr þeirri hafvillu sem hann hefur ratað í og afstýra því að hann verði í stöðugri tilvistarkreppu og þreytandi eftirsókn eftir stundarvinsældum. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að standa undir þeim kröfum sem til hans eru gerðar: Hér þarf aukið aðhald í ríkisfjármálum. Koma þarf stjórn á innflytjendamálin áður en þau sliga hér innviði, þ.m.t. heilbrigðiskerfi, menntakerfi, húsnæðismál og löggæslu. Standa ber vörð um okkar kristna menningararf og íslenska tungu, efla trú þjóðarinnar á getu okkar til að stjórna okkur sjálf og taka ábyrgð á eigin framtíð. Sjálfstæðisflokkurinn verður að sýna aukið mótvægi við vinstri stefnuna sem verið hefur hér allsráðandi síðustu ár og sýna þar með að flokkurinn þjóni kjósendum sínum og hafi tilgang, annan en að skaffa þingmönnum vinnu og reka flokksskrifstofu. Flokkurinn þarf að hætta að sýna hér þjónkun við háværan minnihluta og standa vörð um sína góðu grunnstefnu. Hinn þögli meirihluti þarf að finna kjark til að tjá sig.

Ef Sjálfstæðisflokkurinn treystir sér ekki til að standa undir þessu hlutverki sínu er óhjákvæmilegt að til verði nýr flokkur hægra megin við miðju, sem mun taka upp þann kyndil klassísks frjálslyndis og hófstillts íhalds, sem Sjálfstæðisflokkur nútímans virðist vera að leggja frá sér. Hefur Sjálstæðisflokkurinn efni á að slíkur klofningur verði?“   

Greinina birti Arnar Þór á bloggsíðu sinni.

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: