„Sveitastjórnarkosningarnar ögurstund fyrir formann Sjálfstæðisflokksins“
„Ég veit ekki hvað gerist fyrir formanninn ef flokkurinn kemst ekki til valda í borginni.“
Eva H. Önnudóttir.
Stjórnmál ruv.is: Eiríkur Bergmann og Eva H. Önnudóttir stjórnmálafræðingar gerðu upp pólitíkina á árinu 2025 og hvað kann að vera framundan. Hér er sá kafli þegar þau töluðu um Sjálfstæðisflokkinn og formanninn, Guðrúnu Hafsteinsdóttur:
„Eva og Eiríkur eru bæði sammála um að komandi sveitarstjórnarkosningar séu hálfgerð ögurstund fyrir formann Sjálfstæðisflokksins, sérstaklega í borginni og verði mikil prófraun fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur að flokkurinn komist þar í meirihluta.
Eiríkur bendir á að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið í verulegum vandræðum, klemmst annars vegar á milli hins íhaldssama Miðflokks og hins vegar frjálslyndrar Viðreisnar og viti ekki alveg í hvorn fótinn hann eigi að stíga.
„Og auðvitað er það íka eftirtektarvert að Sjálfstæðisflokkurinn nái ekki þessari viðspyrnu undir forystu nýs formanns.“ Það sé í erfðamengi flokksins að gera tilkall til valdanna, þetta sé valdaflokkur Íslands og valdamiðjurnar séu tvær; ríkisstjórn og borgin. „Hann er ekki við völd í ríkisstjórn og bakland flokksins verður órólegt ef hann nær ekki betri valdastöðu.“
Eva telur að á meðan Sjálfstæðisflokkurinn sé í þessu „limbói“ sínu græði Miðflokkurinn á því. Hún bendir samt á að flokkurinn sé stærstur í borginni, mælist þar með mest fylgi en hafi haft tilheigingu til að leita út fyrir borgarstjórnarflokkinn í leit að leiðtoga með misjöfnum árangri. „Ég veit ekki hvað gerist fyrir formanninn ef flokkurinn kemst ekki til valda í borginni.“