- Advertisement -

Svona er efnahagspólitík Sjálfstæðisflokks í praksís

Garðabær:

Þórður Snær Júlíusson skrifaði:

„Það er eitt að tapa sirka fjórum sinnum meira en Garðabær ætlaði. Og annað að veltufé frá rekstri bæjarsjóðs sé bara rétt rúmlega tvö prósent af tekjum (er t.d. 7,9 prósent í Reykjavík sem Sjálfstæðismenn þreytast ekki á að segja, án innistæðu, að sé gjaldþrota).

Þú gætir haft áhuga á þessum

En ég myndi hafa verulegar áhyggjur af því að handbært fé frá rekstri sé neikvætt um mitt þetta ár upp á 113 milljónir króna. Það þýðir nefnilega að reksturinn skilar engu fé til afborgana eða fjárfestinga. Garðabær þarf þess í stað að ganga á sjóði, taka ný lán eða selja eignir til að eiga fyrir rekstrinum í ár. Alls hefur handbært fé frá rekstri rýrnað um 902 milljónir króna á einu ári!

Þetta er sérstaklega mikið áhyggjuefni vegna þess að Garðabær var að selja byggingarétti á fyrri hluta ársins fyrir 757 milljónir króna. Ef bærinn hefði ekki selt eignir hefði hann tapað 1,4 milljarði króna á fyrstu sex mánuðum ársins.

Þetta kemur samt sem áður ekkert rosalega mikið á óvart. Svona er efnahagspólitík Sjálfstæðisflokks í praksís.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: