„Það er sannarlega blá bylgja á ferðinni“
Samkvæmt niðurstöðu nýjustu skoðanakönnunar heldur Sjálfstæðisflokkurinn áfram að auka fylgi sitt.
„Þetta er auðvitað aðeins könnun, en niðurstaðan endurspeglar þann mikla samtakamátt sem býr í flokknum og hvað gerist þegar sjálfstæðismenn sameinast um skýra stefnu og sameiginleg markmið. Við finnum fyrir miklum krafti um allt land og það er sannarlega blá bylgja á ferðinni,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir formaður flokksins í samtali við Miðjuna.
„Áherslumál okkar hafa fengið sífellt meiri hljómgrunn og Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt að hann er öflugt, heilbrigt og trúverðugt mótvægi við ríkisstjórnina. Fólk sér hvert stefna hennar leiðir, er ósátt við verk hennar og tekur í auknum mæli undir það sem við höfum bent á undanfarna mánuði. Þessi niðurstaða hvetur okkur til að halda áfram af enn meiri krafti,“ sagði Guðrún.
Ekki munar miklu milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar. Sjálfstæðiflokkurinn mælist með slétt 25 prósenta fylgi en Samfylkingin 24,4 prósent.
