- Advertisement -

Það er svigrúm til að hækka veiðigjöldin

„Það að hræða fólk – hvort sem er af útgerðinni eða ríkisstjórninni eins og umræðan er núna – er ekki góð leið til sátta almennt.“

Halla Hrund Logadóttir.

Halla Hrund Logadóttir, þingkona Framsóknar, skrifaði eftirtektarverða grein á Vísi. Grein Höllu byrjar svona:

„Er sanngjarnt að greitt sé gjald fyrir notkun á sjávarauðlind þjóðarinnar? Já það er sanngjarnt. Auðlindagjöld sem nálgun í nýtingu takmarkaðra auðlinda er alþjóðlega viðurkennd leið og það er réttlátt að þjóðin fái arð af verðmætum náttúruauðlindum sínum líkt og fisknum í sjónum.

Þá er það næsta stóra spurning: Er svigrúm til að hækka veiðigjaldið? Já, það er svigrúm. Það er hins vegar mjög misjafnt eftir stærð útgerða, eðli vinnslunnar – og ekki sama hvernig það er útfært. Útfærslan hefur ólík áhrif á bæjarfélög og landshluta sem ríkisstjórninni ber skylda að horfa til.“

Síðar í greinin segir Halla Hrund:

„En það að útgerðin hóti lokun vinnslu; að skella í lás á landsbyggðinni um leið og hækkun gjalda eru nefnd á nafn myndar djúpa gjá í umræðunni og sú gjá er engum til góða. Hún er vatn á myllu frekari deilna. Hún mun ýta undir að sjávarútvegurinn verði talaður niður, í stað upp, í samfélaginu og auka pólitískt umrót hans og áskoranir. Saga margra byggðarlaga, eftir að kvótakerfinu var komið á, er oftar en ekki saga missis og deilna í stað sögu sóknar og trausts. Því þarf sjávarútvegurinn að nálgast orðræðu um gjöld af nýtingu auðlindarinnar af auðmýkt.

Stjórnmálin mega heldur ekki með orðræðu sinni og yfirlýsingum nánast vinna að því að gera sjávarútveginn, hryggjarstykki í efnahagslífi Íslands, að einhvers konar sameiginlegum óvin þjóðarinnar. Það er hvorki gagnlegt né við hæfi. Það að hræða fólk – hvort sem er af útgerðinni eða ríkisstjórninni eins og umræðan er núna – er ekki góð leið til sátta almennt.“

Í lok greinarinnar segir:

„Lægjum öldurnar. Hættum herskárri orðræðu og leitum vandaðra lausna í samvinnu og af yfirvegun. Fyrir þá sem sótt hafa sjóinn og þá sem sækja hann enn. Fyrir atvinnulíf um allt land. Fyrir okkur öll; fólkið í landinu, en ekki síst fyrir framtíðina.“

Hér má lesa alla greinina.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: